Tónlist

Ari Eldjárn fór á kostum í flutningi á Park Life með Blur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ara Eldjárn er margt til lista lagt.
Ara Eldjárn er margt til lista lagt.

Í skemmtiþættinum Glaumbær sem er dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum mættu þeir Ari Eldjárn og Eyþór Ingi og tóku nokkur vel valin lög með Birni Stefánssyni.

Ari Eldjárn sýndi það til að mynda í þættinum að hann er frábær trommari og Eyþór fór almennt á kostum.

Ari lagði á sig á sínum tíma að læra textann við lagið Parklife með Blur og flutti hann lagið einstaklega vel. Náði upphaflegu útgáfunni ansi hreint vel.

Það var enski leikarinn Phil Daniels sem fór með textann í laginu þar sem liðsmenn Blur vildu hafa upprunalegan hreim.

Hér að neðan má sjá flutninginn úr síðasta þætti.

Klippa: Ari Eldjárn fór á kostum sem Damon Albarn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.