Hlýrra loft á leiðinni svo úrkoma breytist í slyddu og rigningu Atli Ísleifsson skrifar 27. janúar 2022 06:55 Hríðarveður er líklegt norðantil á landinu seinni partinn á morgun. Vísir/RAX Veðurstofan spáir suðvestan fimm til tíu metrum á sekúndu, éljum og hita í kringum frostmark í dag. Lengst af verður þó bjart, þurrt og frost núll til sex stig norðan- og austanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að í kvöld komi skil að vestanverðu landinu og þá gangi í sunnan átta til fimmtán metrum á sekúndu með snjókomu. Skilunum fylgir hlýrra loft og er líður á kvöldið breytist úrkoman í slyddu og síðan rigningu á Suður- og Vesturlandi. „Á morgun verður aftur suðvestanátt og él, en léttskýjað norðaustanlands. Eftir hádegi snýst vindur í vaxandi norðanátt með snjókomu, en að sama skapi birtir um sunnanvert landið. Útlit er fyrir að norðanáttin verði allhvöss eða hvöss og því er hríðarveður líklegt norðantil síðdegis á morgun, einkum á fjallvegum.“ Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðvestan og vestan 13-18 m/s með éljum, en úrkomulítið á Austurlandi. Kólnandi veður, frost 0 til 10 stig seinnipartinn. Gengur í norðan 15-20 með snjókomu norðantil um kvöldið, annars hægari vindur og úrkomuminna. Á laugardag: Minnkandi norðanátt og snjókoma um morguninn. Snýst í suðvestan 8-15 m/s með él vestanlands, en léttir til austantil. Frost 0 til 8 stig. Á sunnudag: Suðvestlæg átt, 5-13 m/s og él, en bjart með köflum norðaustanlands. Frost 2 til 10 stig. Vaxandi vestanátt vestantil um kvöldið. Á mánudag: Norðvestlæg átt, víða dálítil él og kalt í veðri. Vaxandi suðaustanátt með snjókomu um kvöldið. Á þriðjudag: Norðanátt með éljum og kólnandi veðri. Á miðvikudag: Útlit fyrir breytilega átt, bjartviðri og frost um allt land.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira