Leikjavísir

Vinna að þremur nýjum Star Wars-leikjum

Samúel Karl Ólason skrifar
Star Wars Jedi: Fallen Order kom út árið 2019 og fékk góðar móttökur. Framhald hans gæti komið út í lok þessa árs eða snemma á því næsta.
Star Wars Jedi: Fallen Order kom út árið 2019 og fékk góðar móttökur. Framhald hans gæti komið út í lok þessa árs eða snemma á því næsta. Respawn Entertainment

Forsvarsmenn leikjaútgefandans Electronic Arts tilkynnti í dag að leikjaframleiðendur á þeirra vegum ynnu að gerð þriggja nýrra tölvuleikja úr söguheimi Star Wars. Einn þeirra er framhald hins vinsæla Star Wars Jedi: Fallen Order.

Annar leikjanna er skotleikur og þar að auki er unnið að gerð herkænskuleiks. Ekkert hefur verið sagt um mögulega útgáfudaga en framleiðsla þessarar síðarnefndu er líklegast skammt á veg komin.

Respawn Entertainment, sem gerði Fallen Order, Apex Legends og Titanfall heldur utan um framleiðsluna.

Sjá einnig: Fallen Order - Góðir hlutir gerast hægt

Í tilkynningu frá EA segir að herkænskuleikurinn verði gerður í samvinnu við nýtt fyrirtæki sem heitir Bit Reactor. Það er skipað fyrrverandi starfsmönnum Firaxis Games sem gerðu meðal annars XCOM-leikina. Skotleikurinn verður alfarið gerður af Respawn.

Sjá einnig: XCom2 War of the Chosen - Allt annar og mun betri leikur

Peter Hirschmann, einn yfirmanna Respawn, verður með framleiðslu þessa leikja á sínum höndum. Hann vann áður hjá LucasArts og kom meðal ananrs að gerð uppunalegu Battlefront leikjanna.

Hann segir að skotleikurinn muni segja sögu sem hann hafi lengi langað að segja. Það sé draumi líkast að fá að koma að þessum leik. Ummæli hans eru til marks um að líklega sé ekki verið að gera nýjan Battlefront leik.

A hefur í nokkur ár verið með einkarétt á framleiðslu Star Wars leikja en sá samningur er nú að renna út. Ubisoft er til að mynda að vinna að framleiðslu Star Wars-leiks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.