Hlý en hvöss suðvestanátt og vætusamt vestantil Atli Ísleifsson skrifar 17. janúar 2022 07:08 Hiti á landinu verður á bilinu þrjú til tíu stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hlýrri en hvassri suðvestanátt í dag. Vætusamt verður á vesturhelmingi landsins, en lengst af þurrt eystra.
Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Breiðafirði og svo á norðurhluta landsins fram á kvöld. Á vef Veðurstofunnar segir að það dragi úr vindi fyrir norðan um kvöldið. Hiti verður á bilinu þrjú til tíu stig, hlýjast austanlands. „Kaldari vestlæg átt á morgun og él, en yfirleitt þurrt á miðvikudag. Svo lítur út fyrir að næsta hlýja lægð komi aðfararnótt fimmtudags. Þannig að þetta eru sannkallaðar umhleypingar.“ Spákoritð fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Vestan 10-18 og él, en úrkomulítið á A-landi. Kólnandi, hiti í kringum frostmark síðdegis. Norðlægari og dregur úr vindi um kvöldið. Á miðvikudag: Vestlæg átt 3-10 og bjart með köflum. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-lands en þykknar upp og hlýnar við V-ströndina um kvöldið. Á fimmtudag: Sunnan- og suðvestanátt og rigning á köflum, en úrkomulítið A-lands. Hiti 3 til 10 stig. Á föstudag: Suðvestanátt, milt og skúrir, en kólnar með éljum þegar líður á daginn. Lengst af þurrt A-lands. Á laugardag: Suðvestanátt og rigning, slydda eða snjókoma, en úrkomulítið NA-lands. hiti 0 til 5 stig en kólnar seinnipartinn. Á sunnudag: Útlit fyrir vestlæga átt með éljum, en úrkomulítið SA-til. Frost um mest allt land.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira