Leikjavísir

Sony lofar mikið bættum sýndarveruleika

Samúel Karl Ólason skrifar
Jim Ryan, forstjóri Sony Interactive Entertainment, á CES2022 í Las Vegas í gær.
Jim Ryan, forstjóri Sony Interactive Entertainment, á CES2022 í Las Vegas í gær. AP/Joe Buglewicz

Sony opinberaði í gær í fyrsta sinn upplýsingar um næstu kynslóð sýndarveruleikabúnaðar fyrirtækisins sem kallast PSVR2. Fyrirtækið sýndi búnaðinn ekki né sagði hvenær sala hans ætti að hefjast.

Búnaðurinn; gleraugu og fjarstýring, verður notaður með PS5 leikjatölvunni.

Kynningin fór fram á Consumer Electronics Show tæknisýningunni í Las Vegas í gær. Sýndarveruleikagleraugun sjálf voru ekki sýnd á kynningunni.

Samkvæmt kynningunni og upplýsingum á vef Sony verða OLED skjáir í gleraugunum og verður upplausn þeirra 2000x2040 fyrir hvort auga. Þá verða skjáirnir 90 og 120Hz og sjónsvið 110 gráður.

Þá munu gleraugun fylgja augum notenda. Gleraugunum fylgja svo nýjar fjarstýringar sem innihalda hreyfiskynjara.

Auk þessa sýndi Sony stutta stiklu úr fyrsta PSVR2-leiknum sem verið er að framleiða. Hann kallast Horizon Call of the Mountain og gerist í sama söguheimi og Horizon Forbidden West, sem kemur út í næsta mánuði.

Eins og áður segir hefur Sony ekkert sagt um mögulegan útgáfudag sýndarveruleikabúnaðarins.


Tengdar fréttir

CES 2022: Nýjustu tæki og tól til sýnis

Consumer Electronic Show eða CES, ein vinsælasta tæknisýning heimsins, hefst formlega í Las Vegas á fimmtudaginn. Sýningin virðist þó ætla að vera með nokkuð minna sniði en oft áður og mörg fyrirtæki kynna vörur sínar og tækni á netinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.