Lífið samstarf

Fjölbreyttir veislupakkar fyrir ferminguna

Matarkompaní
Veislupakkarnir frá Matrakompaní eru ótrúlega girnilegir 
Veislupakkarnir frá Matrakompaní eru ótrúlega girnilegir 

Matarkompaníið býður girnilega veislupakka fyrir fermingar og útskriftir.

„Veislupakkarnir okkar henta bæði í stærri veislur í sal og eins þegar haldin er veisla í heimahúsi. Nú þegar fjöldatakmörkunum er létt og við sjáum fyrir endan á covidástandinu er um að gera að taka frá dagsetningar fyrir veisluna og vera tímanlega í undirbúningnum, ” segir Guðmundur Óli Sigurjónsson, matreiðslumaður og eigandi Matarkompanísins.

Hægt er að panta veislupakka fyrir allar stærðir veisla og býður Matarkompaníið upp á að sérsníða matseðilinn að þörfum hvers og eins með úrvali af hefðbundnum og nýstárlegum réttum sem henta öllum.

„Við erum líka með hefðbundna matarpakka á hagstæðu verði. Við komum með matinn og skerum niður þar sem við á og tryggjum að gæðin skili sér í hvern munnbita. Það er mikil ásókn í fermingarveislupakkana enda erum við með afar hagstæð verð.“

Evrópski-matseðillinn gerir mikla lukku í veislum

Í boði eru tveir súpupakkar, tveir hlaðborðspakkar og smáréttapakki. Hver pakki fær innblástur frá nýjustu straumum og bragðgóðum hefðum. Til dæmis er hægeldað lambalæri í hásæti í íslenska pakkanum en í þeim ameríska er boðið upp á hægeldaða nautalund. Sósur og meðlæti fylgir með öllum pökkum, eins og kartöflubáta með hvítlauksdill olíu, rauðvínsósu, ristað rótargrænmeti og nautasoðgljái.

Einfalt, girnilegt og gott

„Við leggjum mikla áherslu á fjölbreyttan og ferskan matseðil sem hentar fyrir þetta einstaka tilefni. Við bjóðum upp á úrval af bragðgóðum súpum, eins og villisveppasúpu, kókos karrý fiskisúpu, bakaða blómkálssúpa og aspassúpa og þeim fylgir ítalskt brauð ásamt smjöri og heimagerðu pestói.“

Kynntu þér hvað Matarkompaní hefur upp á að bjóða á Matarkompani.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.