Lífið

Var ekki að fara missa af fæðingu frumburðarins út af smá snjó

Stefán Árni Pálsson skrifar
Börkur sat fastur um borð í vél í Amsterdam og tók málin í eigin hendur. 
Börkur sat fastur um borð í vél í Amsterdam og tók málin í eigin hendur. 

Jólaauglýsingar verða alltaf stærri og stærri og fyrir mörgum eru þær mikilvægur hluti af jólahaldinu.

Í Íslandi í dag í gærkvöldi var farið yfir nokkrar skemmtilegar og eftirminnilegar jólaauglýsingar og fékk Sindri Sindrason að heyra hugljúfa sögu Barkar Strand Óttarssonar, flugmanns hjá Icelandair.

Börkur var ein jólin fastur í Amsterdam vegna snjókomu og konan hans við það að eignast þeirra fyrsta barn.

„Við spurðum starfsmann á vellinum um skóflur til að moka snjó frá vélinni svo við gætum tekið á loft. Hann hélt fyrst að við værum að djóka en svo kom hann með tvær skóflur og við byrjuðum strax að moka. Þá sá hann að okkur var alvara,“ segir Börkur og heldur áfram.

„Þeir fóru svo að hjálpa okkur við þetta og við mokuðum frá vængnum svo að olíubíllinn kæmist að. Ég hélt síðan áfram að moka fyrir töskubílunum og stigabílunum og fleira og við bara gengum frá þessu. Úr varð ekki nema tveggja tíma seinkun og í raun eina flugfélagið sem fór í loftið á þessum tíma, allavega var mjög mörgum flugferðum aflýst. Það er svona frekar sorglegt að aflýsa flugi rétt fyrir jól út af smá snjó. Fólk vill komast heim.“

Börkur komst heim til sín og varð viðstaddur þegar frumburðurinn kom í heiminn árið 2010.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni þar sem farið er yfir söguna frá a-ö og einnig er farið yfir fleiri jólaauglýsingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.