Menntun barna og bóluefnasamstarf rædd á ráðherrafundi Heimsljós 14. desember 2021 10:11 Gunnisal Framlag Norðurlandanna til bóluefnasamstarfs var ofarlega á baugi á fundinum. Þróunarsamvinnuráðherrar Norðurlanda hittust á sérstökum fjarfundi í gær og ræddu mikilvægi menntunar á átaka- og hamfarasvæðum, áhrif heimsfaraldursins á skólagöngu barna í þróunarríkjum og þýðingu skólamáltíða. Framlag Norðurlandanna til bóluefnasamstarfs var ofarlega á baugi og áskoranir tengdar framleiðslu og dreifingu bóluefnanna í þróunarríkjum. Þá voru réttindi fatlaðs fólks í þróunarríkjum og staðan í Eþíópíu einnig til umræðu. „Það verður að vera forgangsverkefni í alþjóðastarfi að tryggja bóluefni handa heilbrigðisstarfsfólki, öldruðum og öðrum viðkvæmum hópum, líkt og við gerðum þegar við fengum aðgengi að bóluefni fyrir ári síðan,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, meðal annars á fundinum. „Bóluefni er, engu að síður, aðeins hluti af jöfnunni. Við þurfum einnig að horfa til víðtækari eflingar heilbrigðiskerfa. Viðbrögð við heimsfaraldrinum mega ekki vera á kostnað annars bólusetningarstarfs gegn öðrum sjúkdómum eða annarrar heilbrigðisþjónustu.“ Auk Þórdísar Kolbrúnar sóttu fundinn Anne Beathe Tvinnereim, þróunarmálaráðherra Noregs, Flemming Møller Mortensen, þróunarmálaráðherra Danmerkur, Matilda Ernkrans, þróunarmálaráðherra Svíþjóðar og Ville Skinnari, þróunarmálaráðherra Finnlands, sem stýrði fundinum en Finnar fara nú með formennsku í samstarfi Norðurlandanna. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Innlent