Dusty vann Þór í hörðum toppslag Vodafonedeildarinnar Snorri Rafn Hallsson skrifar 21. nóvember 2021 15:31 Það er ekki ofsögum sagt að beðið hafi verið eftir viðureign Dusty og Þórs allt frá því að Þór sýndi að þeir ætluðu sér stóra hluti í Vodafonedeildinni á þessu tímabili. Bæði liðin höfðu verið taplaus fram að þessu og myndi leikurinn því skera úr um hvort liðið gæti tyllt sér einsamalt á topp deildarinnar. Allir leikmenn Þórs, ef frá er talinn Rean, hafa áður leikið undir merkjum Dusty og höfðu því mikið að sanna. Þar að auki átti StebbiC0C0, stjörnuleikmaður Dusty í fyrra, harma að hefna en fyrir tímabilið var honum sparkað úr Dusty og Midgard kom í hans stað. Það var því ekki bara toppsætið sem var undir á föstudaginn heldur þurfti líka að útkljá ýmis mál. Það kom ekki á óvart að liðin skildu kjósa að mætast í háloftakortinu Vertigo, enda bæði lið því korti vel kunnug og hentar það leikstíl beggja. Þórsarar fóru illa með Dusty í hnífalotunni og kusu að byrja í vörn (Counter-Terrorists). Dusty gerði sér hins vegar lítið fyrir, vann fyrstu skammbyssulotuna og næstu tvær í kjölfarið. Útlitið var ekki gott í upphafi fjórðu lotu þegar StebbiC0C0 komst á vappann en var umsvifalaust felldur af sínum gamla liðsfélaga Thor. Engu að síður tókst Þórsurum að halda uppi vörnum og rann Eddezennn því út á tíma einn gegn tveimur. Thor átti frábæra lotu eftir það og felldi fjóra, en það dugði ekki til og voru Þórsarar því heldur betur farnir að klóra í bakkann. Framan af komst Dusty í örlítið forskot sem Þórsarar voru fljótir að jafna, en Dusty lét það ekki flækjast fyrir sér þó efnahagurinn væri á stundum slæmur og lauk fyrri hálfleik á sannfærandi hátt. Munaði þar mestu um að Dusty felldu feliri andstæðinga og voru duglegri að svara þegar þeirra leikmenn féllu. Staða í hálfleik: Dusty 9 - 6 Þór Þór jafnaði aftur á móti metin strax í upphafi síðari hálfleik og var leikurinn því enn í járnum, bæði lið staðráðin í að sigra og gefa ekkert eftir. Dusty stillti þá upp þéttri vörn og Midgard nældi sér í ás í tuttugustu lotu til að sýna og sanna að Dusty þyrfti ekki að sjá á eftir StebbaC0C0. Glæsileg tilþrif sáust í síðari hálfleik þar sem Rean bjargaði lotu fyrir horn með því að fella þrjá úr afar erfiðri stöðu en á móti sýndu Dusty enga virðingu og sigldu fram úr á lokametrunum. Lokastaða: Dusty 16 - 13 Þór Eftir afar jafnan og spennandi leik stóðu Dusty því uppi sem sigurvegarar. Þeir eru því eina liðið sem á möguleika á að fara í gegnum fyrsta hring tímabilsins án þess að tapa leik og hafa sýnt að þrátt fyrir brotthvarf StebbaC0C0 er liðið sterkara en nokkru sinni fyrr. Í næstu umferð mætir liðið Vallea, föstudaginn 26. nóvember. Þórsarar geta þó borið höfuðið hátt og það er aldrei að vita hvað gerist þegar liðin mætast aftur í næsta hring. Þór á auðveldan leik fyrir höndum þriðjudaginn 23. nóvember þegar liðið tekur á móti Kórdrengjum. Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands. Rafíþróttir Vodafone-deildin