Tónlist

Adele rýfur sex ára þögn með ástarballöðu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Adele á sviði Wembley í júní 2017. Kórónuveirufaraldurinn hefur komið í veg fyrir stóra tónleika undanfarna mánuði og ár.
Adele á sviði Wembley í júní 2017. Kórónuveirufaraldurinn hefur komið í veg fyrir stóra tónleika undanfarna mánuði og ár. Getty/Gareth Cattermole

Eftir sex ára þögn er komið út nýtt lag frá bresku poppstjörnunni Adele. Lagið heitir Easy on me og verður á fjórðu plötu hennar sem ber titilinn 30.

Magt hefur gerst í lífi Adela frá því hún gaf síðast út plötu árið 2015. Hún gifti sig, skildi og opnaði sig um baráttu sína við þunglyndi.

Ástin og ástarsorgin hefur leikið stórt hlutverk í lögum Adele og nýja lagið er engin undantekning. Þar gerir hún upp samband sem telja má líklegt að sé við fyrrverandi eiginmann sinn sem hún á eitt barn með.

Tónlistarmyndbandið við lagið er lengi vel í svart-hvítu en svo brjótast fram haustlitir í síðari hlutanum. Xavier Dolan leikstýrði myndbandinu þar sem Adele sést pakka niður í tösku og yfirgefa heimili í sveitinni sem hefur verið selt.

Svo sest hún upp í bílinn, syngur með sinni stórkostlegu rödd og gerir upp sambandið.


Tengdar fréttir

Adele tryllir netverja með stiklu úr nýju lagi

Breska söngkonan Adele gerði aðdáendur sína vægast sagt hamingjusama fyrr í dag þegar hún greindi frá því að nýtt lag væri væntanlegt síðar í mánuðinum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.