Tónlist

Emmsjé Gauti og Helgi Sæmundur gefa út einlæga plötu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Gauti Þeyr og Helgi Sæmundur gáfu í dag út hjartnæma plötu sem nefnist Mold.
Gauti Þeyr og Helgi Sæmundur gáfu í dag út hjartnæma plötu sem nefnist Mold.

„Fyrir ári töluðum við Helgi Sæmundur saman í síma og tókum þá ákvörðun að vinna saman nokkur demó,“ segir Emmsjé Gauti sem í dag gaf út nýja plötu með Helga Sæmundi í hljómsveitinni Úlfur Úlfur.

„Sameiginlegur vinur okkar hafði fallið frá og það kveikti upp löngun í að gera músík beint frá hjartanu og setja egóið til hliðar í smá stund.“

Platan nefnist Mold og kom út á Spotify í dag.

„Við tókum ákváðum að hittast í Skagafirðinum og vera þar í viku, lokaðir af til þess að semja og skapa. Við mættum í maí 2020 - fjöllin voru ennþá hvít og við settum upp frumstæða útgáfu af heimastúdíóinu hans Helga í sumarbústað sem fjölskyldan hans á. Við vorum með nokkur textabrot og beinagrindur af beatum meðferðis en það var það eina sem við mættum með. Restin sá um sig nokkurnvegin sjálf. Eftir aðra stutta ferð í bústaðinn, nokkur session með góðu liði og þúsund e-mail þykir okkur svakalega vænt um lokaútkomuna.“

Plötuna tileinka þeir Margeiri Dire Sigurðssyni og Gula Drekanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.