Veiði

Rabbi tekur við Norðurá til fimm ára

Karl Lúðvíksson skrifar
Skrifað undir nýjan samning um Norðurá.
Skrifað undir nýjan samning um Norðurá. Mynd: Norðurá

Nýr rekstraraðili er tekin við Norðurá en orðómur um þetta hefur verið í gangi frá því um mitt sumar og er nú staðfestur.

Einar Sigfússon sem hefur verið með sölumálin á sínum höndum frá 2013 hefur hætt samstarfinu við veiðifélagið en það var gert í góðu milli allra aðila. Nýr aðili sem tekur við Norðurá er ekki neinn nýgræðingur en það er Rafn Valur Alfreðsson sem flestir veiðimenn þekkja bara sem Rabba í Miðfjarðará. 

Rabbi hefur rekið Miðfjarðará undanfarin ár með frábærum árangri og það er því mikill fengur að fá slíkan reynslubolta að Norðurá. Sá sem heldur utan um sölumálin er Brynjar Hreggviðsson sem var áður sölustjóri SVFR. Fyrirhugað er að fara í öflugar seiðasleppingar og hrognagröft sem er hluti af því markmiði að auka veiði í ánni.






×