Tónlist

Bríet heldur tónleika í Sky lagoon til styrktar langveikum börnum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bríet kemur fram á tónleikum í Sky lagoon á Kársnesinu.
Bríet kemur fram á tónleikum í Sky lagoon á Kársnesinu. Aðsent

Bríet, Rubin Pollock og Þorleifur Gaukur halda einstaka tónleika þann 7. september í Sky Lagoon. Markmið tónleikanna er að safna í nýstofnaðan sjóð sem nefnist Fjársjóður barna.

Takmarkað miðaframboð er á tónleikana. Húsið opnar kl 20.00. DJ Margeir tekur á móti tónleikagestum. Bríet stígur svo á svið með Rubin Pollock & Þorleifi Gauki og saman ætla þau að skapa ógleymanlega upplifun. Miðasala hefst kl. 12:00 í dag.

„Allur ágóði af tónleikunum rennur óskertur í Fjársjóð barna, nýstofnaðan sjóð sem styrkir verkefni sem stuðla að aukinni velsæld, velferð og hamingju barna. Fyrsta úthlutun sjóðsins mun renna til Rjóðurs, hjúkrunar-, hvíldar- og endurhæfingardeild fyrir langveik börn,“ segir í tilkynningu um tónleikana.

Tónleikarnir eru lokahnykkurinn í Gefðu fimmu söfnun sumarsins sem vakið hefur mikla athygli á samfélagsmiðlum. Gefðu fimmu er skemmtilegt hreyfi- og fjáröflunarátak, þar sem þátttakendur geta gert sjálfum sér og öðrum gott, gefið til góðs málefnis og skorað á vini, fjölskyldu og samstarfsfélaga um að gera slíkt hið sama.

Allar upplýsingar um fyrirkomulag Gefðu Fimmu er að finna HÉR. Það er Velgjörðarfélagið 1881 sem stendur á bakvið Gefðu Fimmu söfnunina.


Tengdar fréttir

Bríet frestar stórtónleikunum

Söngkonan Bríet hefur frestað útgáfutónleikum sem stóð til að halda þann 11. september næstkomandi í Eldborgarsal Hörpu. Tónleikarnir verða í stað haldnir þann 22. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.