Lífið

Bein útsending: 35 ára afmælispartý Bylgjunnar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bylgjan heldur upp á 35 ára afmæli með flottri dagskrá.
Bylgjan heldur upp á 35 ára afmæli með flottri dagskrá.

Bylgjan fór fyrst í loftið á þessum degi árið 1986. Í tilefni af afmælinu verður mikið um að vera á Bylgjunni í dag. Hægt verður að hlusta á afmælisdagskrána á Bylgjunni og horfa á útsendinguna í mynd hér á Vísi og á Stöð 2 Vísi.

Partýið hefst í Bakaríinu klukkan níu og stendur til klukkan fjögur en þá hefst hamingjustund þjóðarinnar, Veistu hver ég var í sérstakri afmælisútgáfu.  Útvarpsfólk Bylgjunnar heldur uppi fjörinu og sér um veislustjórn og svo verður auðvitað nóg af gestum. 

Útsendinguna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Eva Laufey, Svavar Örn, Ívar Guðmunds, Pétur Valmundar, Jói Dans, Bragi Guðmunds, Sigga Lund, Kristófer Helgason, Vala Eiríks og Heimir Karls skipta með sér veislustjórninni í skemmtilegasta afmælispartýi ársins í beinni á Bylgjunni og í mynd Vísi og Stöð 2 Vísi.

Það verður gestkvæmt á Bylgjunni allan afmælisdaginn. Bríet, Jón Jónsson, Sigga og Grétar úr Stjórninni og Eyfi Kristjáns og Páll Óskar mæta öll í hús og taka nokkur lög sem smellpassa í gott afmælispartý. Sérlegur undirleikari allan daginn er hinn ungi og geðþekki Magnús Jóhann.

Á meðal annara gesta eru Sóli Hólm, Edda Björgvins, Hvítvínskonan, Tveir með Öllu og Bergur Ebbi. Öll eiga þau sínar minningar um Bylgjuna og Bergur Ebbi mun rýna sérstaklega í sögu Bylgjunnar með heimspekilegum vangaveltum eins og honum einum er lagið.

Klippa: 35 ára afmæli Bylgjunnar - Hátíðarútsendingin í heild sinni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.