„Partíplata með samviskubiti“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 27. ágúst 2021 07:00 Saman mynda þeir Ármann (t.v.) og Einar dúóið Kef LAVÍK. „Oggulítið dóp, eitthvað af kæruleysi, mikið af kynlífi, enn þá meira djamm og heil eilífð af straumum sársauka og hamingju að renna í eitt og sama fljót.“
Þannig lýsir Ármann Örn Friðriksson, annar helmingur tónlistartvíeykisins Kef LAVÍK, nýrri plötu sveitarinnar, sem ber heitið Eilífur snjór í augunum og kom út í dag. Ármann semur tónlist og texta sveitarinnar, en hinn helmingur sveitarinnar, Einar Birkir Bjarnason, hefur að mestu séð um sönginn. Ármann segir að platan gæti þó komið einhverjum aðdáendum sveitarinnar á óvart í þessu sambandi. „Það eru alveg „surprise“ í þessari plötu. Við tökum svolítinn acoustic kafla á tímapunkti. Svo er þetta fyrsta platan þar sem ég syng lead vocal í einu lagi,“ segir Ármann. Hann hefur áður látið hafa eftir sér að hann sé of feiminn til að syngja, en lítilleg breyting virðist hafa orðið þar á. „Ég er enn þá of feiminn til þess að syngja fyrir framan fólk. Vonandi einn daginn get ég það,“ segir Ármann, og kveðst þakklátur fyrir að hafa Einar vin sinn sér við hlið í þessum efnum. View this post on Instagram A post shared by kef LAVI K (@keflawikgang) Nokkurra mánaða stemning Eilífur snjór í augunum er sjötta plata sveitarinnar í fullri lengd. Ármann sækir iðulega innblástur í eigið líf en sveitin hefur vakið nokkra athygli fyrir textagerð sína, sem fjallar oftar en ekki á umbúðalausan hátt um áfengis- og fíkniefnaneyslu, kynlíf og allan tilfinningaskalann, frá djúpum dölum til algerrar alsælu. „Þetta verkefni snýst svolítið um fimm, sex mánuði í mínu lífi sem var býsna mikil stemning í,“ segir Ármann. Þá liggur beinast við að spyrja: Hvers konar stemning var það? „Það var stemning sem felur í sér gífurlega ofneyslu á áfengi og jafnvel kynlífi líka. Ég myndi segja að þetta sé partíplata.“ „Þetta er bara partíplata með samviskubiti.“ Þessi mynd prýðir plötuumslagið. Tveggja ára verkefni Platan hefur verið nokkuð lengi í smíðum, en um tvö ár eru frá því Ármann samdi fyrsta lagið á henni. Hann segir hana mun vandaðri en annað efni sem sveitin hefur gefið frá sér. „Hljóðheimurinn er mikið betri en áður. Fyrir alla sem hafa hlustað á okkur áður þá ætti þetta að vera smá nýr heimur, og fyrir þá sem hafa ekki hlustað á okkur áður þá ætti þetta að vera besti inngangspunkturinn í að hlusta.“ Ellefu lög eru á plötunni, en þrjú þeirra hafa þegar verið gefin út í formi smáskífa. Það eru lögin VICE CITY BABY, María (útsett fyrir þrjá) og Strobe. Í síðastnefnda laginu slæst rapparinn JóiPé með í för og syngur hluta lagsins. Fleiri gestir eru á þá á plötunni. Það eru þau Daniil, Big Hamka og Hafdís. Þegar blaðamaður náði tali af Ármanni var hann í óðaönn við að skipuleggja lítið útgáfupartí í tengslum við plötuna. Hann segir það stefnuna að halda almennilega tónleika við fyrsta hentugleika. „Það er mjög mikið planið. Við ætlum að reyna um leið og við getum, alveg sama hvaða samkomutakmarkanir eru, að ná því.“ Hér að neðan má heyra eitt laganna af plötunni. Það ber heitið Calliope (baðar brjóstin á sér), en söngkonan Hafdís leggur tvíeykinu lið í laginu. Klippa: Calliope (baðar brjóstin á sér)
Menning Mest lesið „Þetta er engin þrautaganga fyrir mig“ Lífið „Mig langaði að segja þessar sögur“ Lífið Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Tíska og hönnun Krakkatían: Óvæntur gestur, söngleikur og dalmatíuhundar Lífið Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Bíó og sjónvarp „Á svona tímapunkti vantar mann að geta tengt við einhvern“ Lífið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ísland á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision Lét sig dreyma um Eurovision á Húsavík Björk mætir á stóra skjáinn Gítarleikari Whitesnake fallinn frá Upprunalegt handrit „Mr. Tambourine man“ seldist á 70 milljónir Heill hljóðheimur Hildar fer afturábak Frumsýning á Vísi: Ferðalag um næturhimininn með Kára Egils Troðfylltu Iðnó: „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu“ Bestu vinir sem fá að vinna við það sem þeir elska Bríet, Valdimar og Elín Hall meðal hæstu styrkhafa Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni Una Torfa og Jón Jónsson frumfluttu lag í beinni Frumsýning á Vísi: Hálka lífsins með Nýdönsk Nýdönsk á toppnum 2024 Sjá meira