Tónlist

Skíta­mórall gefur út lag: „Al­vöru Skí­mó slagari með öllum stælunum“

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Hljómsveitin Skítamórall hefur gefið út sumarsmellinn Innan í mér.
Hljómsveitin Skítamórall hefur gefið út sumarsmellinn Innan í mér. Mummi Lú

Hljómsveitin Skítmórall hefur sent frá sér nýjan sumarsmell. Lagið sem ber heitið Innan í mér, er alvöru „Skímó slagari með öllum stælunum“.

Lagið er eftir sjálft „hirðskáld aldamóta popparana“, Einar Bárðarson. Það fjallar um tilfinningar einhvers sem virðist eiga erfitt með að halda „kúlinu“ í kringum aðra manneskju. Vignir Snær Vigfússon annaðist upptöku lagsins og Addi 800 masteraði.

„Það eina sem manni dettur í hug þegar maður heyrir lagið er að meðlimir sveitarinnar hafi fengið of stóran skammt af Pfizer,“ segir í talsmaður sveitarinnar. Þá segir í tilkynningu frá hljómsveitinni að það gæti reynst hlustendum erfitt að standa kyrr á meðan lagið er spilað.

Hljómsveitin mun troða upp á tónlistarhátíðinni Kótelettunni á Selfossi á föstudagskvöldið. Það verður í fyrsta skipti sem hljómsveitin kemur saman opinberlega í rúmt ár.

Hér má hlusta á lagið Innan í mér, en lagið er væntanlegt á Spotify á föstudaginn.

Klippa: Fífl innan í mér - Skítamórall





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.