Tónlist

Veitan og Hansa gefa út nýtt lag

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ég syng um langa listann minn, líf mitt þessa dagana. Þá stillist kvíðastingurinn og staðan, ég mun lag´ana, syngur Hansa í laginu Það sem þarf að gera. 
Ég syng um langa listann minn, líf mitt þessa dagana. Þá stillist kvíðastingurinn og staðan, ég mun lag´ana, syngur Hansa í laginu Það sem þarf að gera. 

Jóhanna Vigdís Arnardóttir, betur þekkt sem Hansa, var að gefa út lag með hljómlistahópnum Veitunni. Laginu Það sem gera þarf fyrir líka skemmtilegt myndband þar sem koma fyrir mörg kunnuleg andlit.

Veitan er hópur hljómlistarmanna, tveir upptökustjórar og lagasmiður, sem spila allir á hin ýmsu hljóðfæri. Veitan fær valda söngvara til liðs við sig. Að þessu sinni er það söngleikjastjarnan Hansa sem kemur til liðs við hópinn en hún er meðal annars þekkt fyrir aðalhlutverkin í Mary Poppins, Mamma Mia og Chicago.

Textinn er eftir Halldór Gunnarsson úr Þokkabót en um leikstjórn myndbandsins sáu Sölvi Viggóson Dýrfjörð, Ágúst Örn Børgesson Wigum, Steinunn Lóa Magnúsdóttir og Ísabella Rós Þorsteinsdóttir. Í myndbandinu koma meðal annars fram Patrekur Jamie og Edda Björgvins. 

Myndbandið við lagið Það sem gera þarf má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 

ÞAÐ SEM GERA ÞARF

Ég þarf að semja þetta lag

því þörf er nú að slaka á.

Ég þarf svo margt að drífa í dag

og dagsverk þetta er ekkert smá.

Ég syng um langa listann minn,

líf mitt þessa dagana.

Þá stillist kvíðastingurinn

og staðan, ég mun lag´ana.

Já, það þarf að þjóta um allt,

í þúsund hluti að spá.

Borga hér og borga þar,

bollaleggja og slá.

Leggja rækt við ræktina

og rækta garðinn sinn.

Fara vel með fjárhaginn

og fara ekki í spinn.

Það þarf að þvo upp diskana

og þarf að klippa strákana.

Athuga með rennuna

og kaupa nýja gólflista

Panta meiri málningu

og muna að skipta á rúminu

Taka til í holinu

og taka af eldhúsborðinu.

Já, það þarf að kaupa þurrkublöð

og þrifa bílinn sinn.

Fara í búð og borga inn á

bankareikninginn.

Fara yfir fjármálin

og fá sér nýja skó.

Skipuleggja skúffurnar

og skipta um rafmagnskló.

Líf mitt kemst í lag ef ljúka þessu næ.

Strikist eitthvað út, annað strax ég fæ.

Já, það þarf að passa peningana

og pjatt er út í hött.

Ég lýsi eftir ljósaperu

í lagi, hundrað vött.

Að æðibunast endalaust

er á við ævistarf.

En þetta er nú þannig séð,

það sem gera þarf.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.