Lífið

Ljómandi húð og fallegri förðun eftir andlitsrakstur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þær Heiður Ósk og Ingunn Sig gefa góð ráð varðandi andlitsrakstur, því það er margt sem þarf að hafa í huga áður en rakvél er notuð á andlitshár.
Þær Heiður Ósk og Ingunn Sig gefa góð ráð varðandi andlitsrakstur, því það er margt sem þarf að hafa í huga áður en rakvél er notuð á andlitshár. Samsett

Andlitsrakstur hjá konum hefur orðið vinsælli með árunum. Við fengum þær Heiði Ósk og Ingunni Sig hjá HI beauty til þess að taka saman nokkur góð ráð varðandi andlitsrakstur kvenna. 

„Við höfum tvenns konar hár í andlitinu. „Vellus“ hár,  sem eru þessi örþunnu hár sem þekja líkamann okkar og svo „terminal“ hár. Markmið rekstursins er að fjarlægja báðar þessar týpur af hárum.“ 

Þær Heiður og Ingunn segja að með því að fjarlægja þessi hár sé í leiðinni verið að fjarlægja dauðar húðfrumur af húðinni sem getur látið húðina virðast bjartari. Það er samt margt sem skal varast og þetta hentar alls ekki öllum húðgerðum. 

„Eftir andlitsrakstur leggjast förðunarvörur betur á húðina þannig mörgum hefur fundist þægilegra að farða sig og upplifa húðina meira ljómandi.“

Þær segja að algengustu mýturnar um rakstur séu að hárvöxturinn aukist og að hárin vaxi grófari til baka. 

Hér fyrir neðan má finna leiðbeiningar Ingunnar og Heiðar varðandi raksturinn.

  1. Það er mikilvægt að byrja alltaf með hreina og þurra húð. Ef húðin er mjög þurr er hægt að bera rakstursgel eða rakakrem á húðina fyrir rakstur.
  2. Notið tól sem er sérhannað fyrir kvenkyns andlitsrakstur. Rakvélarnar líkjast augabrúnarakvélum og eru oft kallaðar dermaplaining tool.
  3. Til að forðast ertingu er mælt með að nota skarpa eða nýja rakvél að hverju sinni.
  4. Þegar rakað er, haltu húðinni strekktri með annarri hendinni og rakvélinni í 45 gráður. Notaðu stuttar, léttar strokur með litlum þrýsting.
  5. Það á alltaf að raka i sömu átt og hárin vaxa.
  6. Hreinsaðu rakvélina eftir hverja stroku.
  7. Veldu þér svæði sem þér finnst þú þurfa að raka. Ekki raka til dæmis undir eða nálægt augunum
  8. Eftir rakstur er gott að hreinsa andlitið með vatni og bera góðan raka á húðina, forðist virk efni eftir rakstur.
  9. Ekki er mælt með andlitsrakstur fyrir viðkvæm og/eða bólótta húð.

Tengdar fréttir

Stjörnurnar sem skinu skærast á rauða dreglinum

Óskarsverðlaunin voru afhent í 93. skipti í gær. Það voru margar stjörnur sem vöktu mikla athygli á rauða dreglinum og fengum við Ingunni Sig og Heiði Ósk okkar í HI beauty til þess að taka saman það sem stóð upp úr að þeirra mati.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.