Vindur gæti náð 40 metrum á sekúndu í hviðum Atli Ísleifsson skrifar 8. apríl 2021 07:16 Gular viðvaranir taka gildi austan til síðar í dag.Mjög snarpar vindhviður, allt að 40 m/s. Fólk er hvatt til að sýna aðgát á ferðalögum og tryggja lausamuni. Veðurstofan Lægðin og snjókomubakkinn sem henni fylgdi er nú á leið austur og fjarlægist landið en skilur eftir hjá okkur norðan strekking eða allhvassann vind. Á Suðausturlandi og á Austfjörðum verður norðvestan hvassviðri eða stormur, 18 til 25 metrar á sekúndu.
Gular viðvaranir taka gildi austan til síðar í dag þar sem von er á mjög snörpum vindhviðum, allt að 40 metrum á sekúndu. Hefur fólk verið hvatt til að sýna aðgát á ferðalögum og tryggja lausamuni. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að eftir ofankomu næturinnar verður víða bjartviðri eða léttskýjað en þó verður nokkur él norðaustan- og austanlands fram á kvöld. Frost á landinu verður víðast á bilinu núll til átta stig. Gular viðvaranir taka gildi á Suðausturlandi og Austfjörðum um miðjan dag í dag og gilda fram á næsta morgun. Í nótt lægir vestantil en áfram verður nokkur strengur austast á morgun. Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðvestan og vestan 5-10 m/s en 10-18 austast fram eftir degi. Víða léttskýjað en stöku él við vesturströndina. Frost 0 til 7 stig að deginum. Á laugardag: Suðvestan 5-10 m/s. Dálítil snjókoma eða rigning um landið vestanvert með hita um eða yfir frostmarki, en bjartviðri austantil og frost 0 til 6 stig. Á sunnudag: Austlæg eða breytileg átt og slydda eða snjókoma sunnan- og vestanlands en annars él. Hiti um frostmark. Á mánudag: Fremur hæg norðaustlæg átt og léttskýjað en él með norður- og austurströndinni. Hiti 0 til 6 stig að deginum. Á þriðjudag: Norðaustanátt með snjókomu en þurrt að kalla suðvestantil. Heldur kólnandi. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða éljum um landið norðanvert en björtu veðri syðra. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira