Tónlist

Fleiri dýr en fólk í myndbandinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hildur og Ragna vinna saman í fyrsta sinn.
Hildur og Ragna vinna saman í fyrsta sinn.

Hljómsveitin RED RIOT gefur út myndband í dag við fyrsta lag sitt, Bounce Back. Hljómsveitin samanstendur af þeim Hildi Kristínu Stefánsdóttir og Rögnu Kjartansdóttur, betur þekkt sem Cell7.

Myndbandið er leikstýrt af Baltasar Breka Samper og framleitt af Stellu Rín Bieltvedt.

„Við vorum ótrúlega heppnar að fá Baltasar Breka með okkur í lið en hann tók hugmyndina okkar á miklu hærra plan. Okkur langaði að segja sögu með myndbandinu sem héldi áhorfendanum spenntum frá fyrstu sekúndu og við gætum ekki verið ánægðar með útkomuna,“ segir Hildur Kristín og heldur áfram.

„Það léku fleiri dýr í þessu myndbandi en fólk, en alls fjórir hundar og einn hestur kemur við sögu. Myndbandið var tekið upp yfir eina helgi í marsmánuði í einstakri 70´s höll sem við fengum lánaða og í Heiðmörk. Í stuttu máli fjallar þetta um eigendur sýningarhunda sem eru þreyttir á að vinna aldrei fyrstu verðlaun á hundasýningum og reyna því að taka málin í sínar eigin hendur.“

Hér að neðan má sjá myndbandið.


Tengdar fréttir

„Við erum að byrja byltingu“

Tónlistin sem við erum að gera er frekar áköf og okkur langaði að finna nafn sem passaði við þetta allt. Red - rauður er litur eldsins, Riot – uppreisn/bylting, er einmitt það sem við erum að gera með þessari tónlist. We are starting a riot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.