Lífið

Stjörnulífið: Tenerife, skvísudjamm og lúxus á hóteli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alltaf fjör hjá Instagramstjörnunum. 
Alltaf fjör hjá Instagramstjörnunum. 

Þjóðin kláraði febrúarmánuð með stæl ef marka má Stjörnulíf vikunnar. Þjóðin hefur náð einstökum árangri þegar kemur að baráttunni við kórónuveiruna og þá vilja sumar fagna í góðum félagsskap.

Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir átti 47 ára afmæli en hún er við tökur á sjónvarpsþáttaseríunni Verbúðinni á Vestfjörðum. Hún birti mynd af sér með leikkonunum Unni Ösp Stefánsdóttur og  Önnu Svövu Knútsdóttur í kari vestur á fjörðum.

„Elskur takk svo innilega fyrir allar dásamlegu kveðjurnar á nýliðnu afmæli mínu! Það er svo geggjað að eldast og þakklæti er mér efst í huga með allt yndislega samferða fólkið mitt. Eyddi afmælinu hér á Suðureyri við tökur á sjónvarpsseríunni Verbúð með Vesturporti, mínu besta fólki og trylltu góðu crewi. Sagt er að hláturinn lengi lífið og hér hefur aldeilis verið hlegiðtakk takk hlakka til að eldast enn meira með ykkur,“ skrifar Nína. 

Þormóður Jónsson fyrrverandi eigandi Fíton og nú Íslensku auglýsingastofunnar fagnaði sextugsafmæli sínu í góðra vina hópi á Jómfrúnni eftir hádegið á sunnudag. Þangað mættu meðal annarra hjónin Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson sem kennd hafa verið við Bónus, Baug, 365 og fleiri fyrirtæki í gegnum tíðina en setja nú krafta sína og fjármagn í Haga. Þar voru einnig Pálmi Haraldsson fjárfestir, oftast kenndur við Fons og Iceland express, og eiginkona hans Birna Guðmundsdóttir.

Guðmundur Kristjánsson í Brim skellti sér út að borða með Helgu I. Stefánsdóttur, sambýliskonu sinni og búningahönnuði, á La Primavera. Þar var einnig Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, með eiginkonu sinni.

Steinþór Helgi Arnsteinsson, athafnamaður, og Glódís Guðgeirsdóttir, margverðlaunaður meistari í hópfimleikum, nutu lífsins á Tenerife á dögunum. 

Áslaug Arna dómsmálaráðherra skellti sér í sveitina. 

 Binni Glee fagnaði seríu 2 af Æði en henni lauk á fimmtudaginn. 

Stjörnulögmaðurinn Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson dressaði sig upp fyrir kvöldið. 

Sunneva Einars klikkaði ekki á skvísumyndinni.

Rúrik Gíslason er að gera frábæra hluti í þýsku dansþáttunum Let´s Dance. 

Fín helgi hjá Róberti Wessmann og Kseniu Shakhmanovu. 

Manuela Ósk og Eiður Birgisson skelltu sér á hótel um helgina. 

Birgitta Líf Björnsdóttir markaðstjóri World Class dressaði sig upp fyrir teiti. 

Skvísukvöld af bestu gerð hjá Sunnevu Einars og dansdrottningunni Ástrósu Traustadóttur. 

 María Birta nýtur lífsins í Las Vegas og ekki er veðrið að skemma fyrir.

 Hafþór Júlíus Björnsson birtir fallegar myndir af sér og syni sínum Stormi.

Elísabet Gunnars nýtir sólina til að halda á sér hita í Esbjerg. Ekki nema tíu stiga hiti en það dugar. 

Ásdís Rán nýtur sín á hóteli í Búlgaríu. 

Birgitta Haukdal skellti sér á skíði um helgina. 

Salka Sól stolt af eiginmanni sínum Arnari Frey Frostasyni sem á bara afmæli á fjögurra ára fresti, enda hlaupaársbarn. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.