Martraðarbyrjanir Juventus sem náði þó að skora mikilvægt útivallarmark Anton Ingi Leifsson skrifar 17. febrúar 2021 21:53 Ronaldo ekki sáttur í kvöld. Hann komst ekki á blað, aldrei slíku vant í Meistaradeildinni. Jose Manuel Alvarez/Getty Juventus er 2-1 undir gegn Porto eftir fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Liðin mættust í Portúgal í kvöld en síðari leikur liðanna fer fram í Tórínó í næsta mánuði. Það voru ekki liðnar tvær mínútur er Mehdi Taremi skoraði fyrsta markið. Rodrigo Bentancur átti slaka sendingu til baka á Wojciech Szczesny sem Taremi komst inn í og boltinn í netið. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik en byrjunin á síðari hálfleik var svipuð og sá fyrri. Það var ekki liðin ein mínúta er Moussa Marega var skyndilega inn gegn Szczesny og kláraði hann færið vel. Juventus náði þó að skora mikilvægt útivallarmark. Federico Chiesa fékk þá boltann frá Adrien Rabiot og kom boltanum í netið á Drekavöllum. Ansi mikilvægt mark sem gæti reynst mikilvægt í síðari leik liðanna. Lokatölur 2-1 en liðin mætast á nýjan leik þann 9. mars. FT | ⏱ | The hosts win it on the night, but we take an important away goal back to Turin! ⚪️⚫️#FCPJuve #JuveUCL #ForzaJuve pic.twitter.com/d8fvlQDeXD— JuventusFC (@juventusfcen) February 17, 2021 Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti