Lífið

Harry og Meghan rjúfa þögnina í viðtali við Opruh Winfrey

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Meghan og Harry sjást hér á Mountbatten-tónlistarhátíðinni í mars í fyrra en skömmu síðar losnuðu þau undan öllum sínum konunglegu skyldum.
Meghan og Harry sjást hér á Mountbatten-tónlistarhátíðinni í mars í fyrra en skömmu síðar losnuðu þau undan öllum sínum konunglegu skyldum. Getty/Simon Dawson

Harry Bretaprins og Meghan Markle, hertogahjónin af Sussex, munu í næsta mánuði setjast niður með bandaríska þáttastjórnandanum Opruh Winfrey og veita sitt fyrsta viðtal eftir að þau létu af öllum konunglegum skyldum í mars í fyrra.

Hjónin tilkynntu á sunnudaginn að þau ættu von á sínu öðru barni en fyrr í vetur greindi Meghan frá því að þau hefðu misst fóstur síðastliðið sumar.

Það var í byrjun janúar í fyrra sem Harry og Meghan greindu frá þeirri ákvörðun sinni að segja sig frá öllum konunglegum skyldum og lifa fjárhagslega sjálfstæðu lífi, án þess að þiggja greiðslur frá bresku konungsfjölskyldunni. Þau fluttu í kjölfarið til Kaliforníu.

Viðtal Opruh við hjónin, sem sýnt verður 7. mars, ber yfirskriftina Oprah with Meghan and Harry: A CBS Primetime Special. CBS-sjónvarpsstöðin lýsir viðtalinu sem nánu samtali. Fyrst muni þær Winfrey og Meghan ræða saman og síðan muni Harry koma í viðtalið.

Winfrey er vinkona Meghan og var meðal annars í brúðkaupi hjónanna vorið 2018. Á þeim tíma voru uppi vangaveltur um að hún myndi taka viðtal við þau.

Að því er fram kemur í frétt Guardian um viðtalið segir að ekki sé ljóst hvort Meghan og Harry létu konungsfjölskylduna vita af viðtalinu en þar sem þau sinna engum störfum fyrir fjölskylduna ber þeim ekki skylda til að láta vita af því þegar þau koma fram í fjölmiðlum. Buckingham-höll neitaði að tjá sig um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.