Lífið

Á fjallaskíðum og svo nakinn í náttúrulaug

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tómas skemmtir sér vel fyrir vestan.
Tómas skemmtir sér vel fyrir vestan. @tómas guðbjartsson

Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir á Landspítala, er í sannkallaðri ævintýraferð á Vestfjörðum og er hann í ferðinni ásamt ljósmyndurunum Ragnari Axelssyni, RAX, og Páli Stefánssyni.

Í morgun birti Tómas mynd á Facebook þar sem hann sýnir frá því að hægt sé að skella sér nakinn í heita laug eftir góða fjallaskíðaferð.

„Inn af Arnarfirði er Reykjafjörður em ber nafn með rentu. Þarna er frábær náttúrulaug - ein af mínum uppáhalds. Um þessar mundir er hún svona „ski-in“ laug. Maður bara rennir sér beint niður snævi þakin fjöllin á fjallaskíðum, hendir sér úr dressinu og ofaní. Svo er hægt að þrífa skíðin í leiðinni! Aðeins svalt þegar farið er upp úr en þar sem enginn er á svæðinu þarf ekki að þerra neina sundskýlu,“ skrifar Tómas og birtir þessa mynd með.

 Færðin hefur ekki alltaf verið góð á ferðalaginu.

„Það var smá fyrirhöfn að komast upp út Arnarfirði að Dynjanda í dag. RAX ákvað að taka myndir í stað þess að hjálpa mér að moka mig lausan og Palli Stef hélt sig inni í bíl - enda á stuttbuxum,“ skrifar Tómas við mynd sem hann birti ég gær.

Dynjandi í klakaböndum var eitthvað sem heillaði ferðafélagana. 

Menn gera vel við sig í mat og drykk.

 „Húsmæðraklám í Reykjafirði. Spurning hver er elstur og hefur þroskaðasta húmorinn,“ skrifar Tómas við þessa mynd þar sem þeir félagarnir njóta sín í náttúrulaug.

Ótrúleg náttúrufegurð sem þeir félagarnir sjá í skíðaferðinni. Myndavélin aldrei langt undan hjá Tómasi enda er hann að keppa við tvo atvinnuljósmyndara. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.