Bíó og sjónvarp

Hyggja á fram­leiðslu þátta um Karl Gústaf í anda The Crown

Atli Ísleifsson skrifar
Karl Gústa sextándi og Silvía drottning gengu í það heilaga árið 1976.
Karl Gústa sextándi og Silvía drottning gengu í það heilaga árið 1976. Getty/Michael Campanella

Til stendur að ráðast í gerð sjónvarpsþátta í anda The Crown sem eiga að fjalla um ævi Karls Gústafs Svíakonungs.

Variety segir frá þessu en það eru sjónvarpsstöðin TV4 og streymisveitan C More sem munu standa að framleiðslunni. Sænski höfundurinn Åsa Lantz, sem hélt utan um handrit á verðlaunamyndinni Selma, mun hafa yfirumsjón með handritinu.

Í þáttunum verður fjallað um ævi Karls Gústafs, þar með talið árin áður en hann tók við krúnunni árið 1973. Karl Gústaf settist á konungsstól að afa sínum látnum, en faðir hans, Gustaf Adolf, lést í flugslysi árið 1947. Karl Gústaf gekk svo að eiga Silvíu drottningu árið 1976.

Joel Kinnaman.Getty/Presley Ann

Variety segir frá því að Lantz hafi um árabil safnað að sér göngum um konunginn. „Aðrir kóngar og drottningar eru sögð hafa haft áhrif á heimsatburði. Saga okkar konungs er nokkuð frábrugðin. Ekki jafn áberandi á alþjóðavísu en alveg jafn dramatísk og heillandi. Og fyrir mörg okkar, fullkomlega óþekkt,“ segir Lantz.

Búið er að upplýsa sænsku hirðina um áætlanirnar um gerð þáttanna, en ekki hefur verið haft beint samband við einstaka meðlimi konungsfjölskyldunnar.

Í samtali við DN segir að draumur Lantz sé að Joel Kinnaman muni fara með hlutverk konungsins í þáttunum. Kinnaman hefur meðal annars gert garðinn frægan fyrir hlutverk sitt í myndunum Snabba Cash og Suicide Squad.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.