Lífið kynningar

Rub23: Heimsending af matseðlum fjögurra veitingastaða

Yfir 180 réttir af matseðlum fjögurra veitingastaða á Akureyri eru nú í heimsendingu frá Rub23.
Yfir 180 réttir af matseðlum fjögurra veitingastaða á Akureyri eru nú í heimsendingu frá Rub23.

Rub 23 býður heimsendingu af öllum réttum á matseðlum fjögurra veitingastaða á Akureyri, Rub 23, Sushi Corner, Pítsusmiðjunni og Bautanum.

Eldbakað frá Pítsusmiðjunni.

„Við viljum koma til móts við fólk í þessu ástandi sem er. Margir eru að vinna að heiman og geta ekki verið á ferðinni úti. Við keyrum matinn heim að dyrum og öll afgreiðslan er snertilaus,“ útskýrir Einar Geirsson, eigandi Rub23.

Hægt er að raða saman réttum af öllum stöðunum í eina pöntun. Þá getur hver fengið það sem hann langar í.

„Fólk hefur úr yfir 180 girnilegum réttum að velja og hægt að setja saman rétti af öllum stöðunum í eina pöntun. Það getur komið sér vel þegar einn vill pítsu, annar hamborgara og þriðji sushi. Fólk hringir bara á Rub23 eða á Bautann og pantar,“ segir Einar.

Hægt er að panta milli klukkan 12 til 20. Á heimsendinguna leggst 800 króna gjald sem rennur óskert til meistaraflokks KA í fótbolta.

„Við vildum gera úr þessu smá fjáröflun líka fyrir KA,“ segir Einar.

Hægt er að skoða alla rétti á k6veitingar.is

Þessi kynning er unnin í samstarfi við Rub23.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.