Lífið

Stjörnulífið: Njóta lífsins á Maldíveyjum og ástarkveðjur á Seyðisfjörð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nýjar og gamlar myndir fyrirferðamiklar. 
Nýjar og gamlar myndir fyrirferðamiklar. 

Þá er komið að síðasta Stjörnulífinu fyrir jól og setja hátíðirnar sinn svip á liðinn í þessari viku, enda aðeins þrír dagar til jóla.

Knattspyrnukappinn Gary Martin varði fríi sínu með vini á Tenerife á dögunum í einangrun. Núna nýtur hann lífsins á Maldíveyjum með kærustu sinni.

Skúli Mogensen, fyrrverandi eigandi WOW air, fann sér jólatré ásamt fjölskyldunni í Hvammsvík í Hvalfirði um helgina.

Söngvararnir og vinirnir Friðrik Ómar, Regína Ósk og Selma Björns höfðu það gott á Akureyri um helgina. Skelltu sér meðal annars í Jólahúsið auk þess sem Friðrik Ómar heimsótti nokkra Akureyringa sem fengu söng frá honum í listagjöf. Þá mátti sjá á Instagram-síðu hans að þau Selma eru að vinna í einhverju jólalegu verkefni saman.

Móeiður Lárusdóttir, bloggari og áhrifavaldur, birti fallega jólamynd með dóttur þeirra Harðar Björgvins Magnússonar knattspyrnukappa.

Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir er komin til landsins og er í sóttkví með Árna Vilhjálmssyni kærasta sínum. Þau dvelja greinilega í sumarbústað eftir heimkomuna og lætur Sara Björk vel af dvölinni. Hún varð Evrópumeistari á árinu, landsliðið tryggði sig á EM og allar líkur á að hún verði kjörin íþróttamaður ársins.

Fyrirlesarinn Pálmar Ragnarsson er kominn í jólagírinn en hann klæðir sig árlega upp sem jólasveinn og skemmtir fólki.

 Þingmaðurinn Kolbeinn Óttarsson Proppé hefur örlítið breyst á 25 árum. 

Hafþór Júlíus Björnsson birti fallegar fjölskyldumyndir.

Cross-fit stjarnan Sara Sigmundsdóttir lék sér með hundinum þegar hún átti að vera læra. 

Seyðfirðingurinn Helgi Ómarsson er eðlilega miður sín eftir hamfarirnar á Seyðisfirði. 

Birgitta Líf Björnsdóttir glæsileg að vanda. 

Ástrós Rut Sigurðardóttir og dóttir hennar Emma veltu nýju bumbunni fyrir sér en Ástrós á von á sínu öðru barni.

Svala Björgvinsdóttir kom frá á Jólagestum Björgvins Halldórssonar í beinni útsendingu á laugardagskvöldið og var stórglæsileg á sviðinu. 

Söngkonan Margrét Eir og tónlistarmaðurinn Andrés Þór gáfu Seyðfirðingum listagjöf. 

Glimmertímabilið hjá Ástrósu Traustadóttur dandsdrottningu.

Ásdís Rán yfirsig stolt af börnunum. 

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skellti sér í aðventugöngu með börnunum.

Tökur á Leynilöggunni lokið og er leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson ánægður með ferlið og stoltur af hans fyrstu kvikmyndi í fullri lengd. 

 Linda P skellti sér í myndatöku með hundunum. 

Herra Hnetusmjör birti góða mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.