Lífið

Stjörnu­líf: Skvísu­bú­staðar­ferð og allar í stíl

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það var greinilega mikið fjör í bústaðarferðinni. Sölvi Tryggvason var reyndar ekki með í för.
Það var greinilega mikið fjör í bústaðarferðinni. Sölvi Tryggvason var reyndar ekki með í för.

Nú eru aðeins tíu dagar til jóla og setur það heldur betur svip sinn á Stjörnulífið í þessari viku. Þjóðin er að gera sig tilbúin í mjög einkennilega hátíð vegna samkomutakmarkana.

En það virðist ekki hafa áhrif á færslurnar á Instagram og er jólagírinn sannarlega mættur með hvelli.

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar er í það minnsta kominn í gírinn.

„Hvað eru mörg prósent líkur á að 56 ára kall, sem situr einn í vesturbænum á þriðja í aðventu og málar piparkökur, sé að byrja að ganga í barndóm?“

Katrín Júlíusdóttir ákvað að hætta að fylgjast með Covid tölfræði og fékk sér hengirúm í staðinn.

Katrín Tanja segir að aldur sé bara tala og maður eigi aldrei að hætta skemmta sér. Þess vegna fór hún út að róla.

Sunneva Einarsdóttir og nokkrar vinkonur skemmtu sér einstaklega vel um helgina og voru þær allar klæddar í stíl. 

Birgitta Líf og Ástrós Traustadóttir voru að sjálfsögðu mættar. 

Saman voru þær í bústað á Þingvöllum og mætti áhrifavaldurinn Magnea Björg Jónsdóttir einnig.

Tónlistarkonan Þórunn Antonía birti fallega mynd af sér. 

Róbert Wessman er á leiðinni í ferðalag með fjölskylduna. 

Áslaug Arna hljóð 100 kílómetra í nóvember. 

Sóla Hólm fannst það góð hugmynd að skella sér út með unnustu sinni Viktoríu Hermannsdóttur og dóttur þeirra og kaupa jólatré. Og ganga með það síðan heim. Það gekk ekkert sérstaklega vel.

Friðrik Ómar er í skýjunum að vera kominn með tíu þúsund fylgjendur á Instagram. 

Björn Bragi Arnarson er þakklátur fyrir viðtökurnar á fyrstu seríunni af Kviss en úrslitaþátturinn var í beinni útsendingu á Stöð 2 á laugardagskvöldið. Þróttarar stóðu uppi sem sigurvegarar og í því liði voru þau Sóli Hólm og Sólrún Diego.

Knattspyrnumaðurinn Ragnar Sigurðsson birti fallega mynd af sér og syni sínum. 

Stjarna helgarinnar er án efa Baldvin Sólmundarson, sonur Sóla Hólm, sem fór á kostum sem Prins Nutella í spjallþætti Gumma Ben og Sóla Hólm. 

Alexandra Helga og Gylfi Þór eiga von á sínu fyrsta barni. Gylfi skoraði fyrir Everton gegn Chelsea um helgina. 

 Sverrir Þór Sverrisson fer með hlutverk í Leynilöggunni.

„Algengasta setningin mín á þessu skrítna ári sem brátt verður liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka. Sem betur fer,“ skrifar Björn Ingi Hrafnsson við mynd sem hann birti á Instagram. 

Theódór Elmar Bjarnason og Pattra Sriyanonge héldu upp á fjögurra ára afmæli sonarins á Tyrklandi. 

„Birthday boy. Aðeins eldri, aðeins lífsreyndari. Aðeins meira swag. Takk innilega fyrir allar kveðjurnar í dag. Þig eruð öll snillingar,“ skrifaði Sölvi Tryggvason í færslu á Instagram í tilefni af eigin afmæli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.