Viðskipti innlent

Ís­lendingar og Bretar skrifa undir við­skipta­samning

Atli Ísleifsson skrifar
Um 90 prósent af núverandi viðskiptum Breta og Íslendinga verða áfram tollfrjáls, að því er fram kemur í tilkynningu frá breska utanríkisráðuneytinu.
Um 90 prósent af núverandi viðskiptum Breta og Íslendinga verða áfram tollfrjáls, að því er fram kemur í tilkynningu frá breska utanríkisráðuneytinu. Getty

Bresk og íslensk stjórnvöld hafa skrifað undir bráðabirgðafríverslunarsamning sem mun taka gildi í ársbyrjun 2021.

Frá þessu segir á vef breska utanríkisviðskiptaráðuneytisins, en samningnum er ætlað að tryggja áframhaldandi viðskiptasamband ríkjanna eftir að aðlögunartímabil Bretlands eftir útgöngu úr Evrópusambandinu og þar með evrópska efnahagssvæðinu lýkur um áramót.

Í tilkynningunni segir að samkvæmt samningnum munu um 90 prósent af vöruviðskiptum ríkjanna áfram vera tollfrjáls. Í samningi Breta og Norðmanna, sem einnig var skrifaður undir í dag, er hlutfallið 95 prósent.

Sérstaklega er tekið fram að breskir neytendur munu áfram geta notið frosinnar ýsu frá Íslandi og Noregi sem verður áfram tollfrjáls.

Uppfært klukkan 14:30: 

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir samningurinn tryggi óbreytt tollkjör vegna vöruviðskipta við Bretland. Er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, að fagnaðarefni sé að kjarnahagsmunir íslenskra fyrirtækja hafi nú verið tryggðir.

Samningurinn eru sagður byggja á samningi sem upphaflega var gerður í apríl 2019 og stóð til að tæki gildi ef útganga Bretlands úr ESB hefði verið án samnings. „Þar sem Bretland gekk úr Evrópusambandinu með útgöngusamningi þann 31. janúar sl. kom aldrei til þess að sá samningur tæki gildi. Í október sl. náðist samkomulag um að bráðabirgðasamningurinn taki gildi um áramót uns fríverslunarsamningurinn er tilbúinn og með undirrituninni í dag er sú ákvörðun fest í sessi,“ stendur í tilkynningunni.

Ennfremur segir að íslensk stjórnvöld hafi lagt áherslu á að styrkja enn frekar og byggja upp sambandið við Bretland eftir útgöngu. „Bráðabirgðafríverslunarsamningurinn tryggir að inn- og útflutningur til og frá Bretlandi lúti ekki hærri tollum en í dag. Markmið samningsins er þannig að viðhalda gildandi kjörum þar til samið hefur verið um nýjan og viðameiri fríverslunarsamning á milli ríkjanna. Noregur á jafnframt aðild að samningnum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×