Lífið

Stjörnulífið: Talið niður í heimsókn kærastans

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jólin greinilega handan við hornið. 
Jólin greinilega handan við hornið. 

Annar í aðventu gekk í garð í gær og styttist nú óðum í jólin sem margir bíða eflaust spenntir eftir.

Jólagír þjóðarinnar setur svið sinn á Stjörnulífið í þessari viku en Íslendingar eru í óða önn að undirbúa hátíðarnar.

Bloggarinn Guðrún Sørtveit og samfélagsmiðlastjarnan skellti sér út í sínu fínasta pússi.

Tónlistarkonan Bríet kynnti nýjan bol sem er kominn í sölu með henni sjálfri framan á.

Elísabet Gunnars og eiginmaður hennar Gunnar Steinn fóru á listasafnið ARos í Árósum í Danmörku þar sem þau búa. Þau gengu hring eftir listaverki Ólafs Elíassonar, sem heitir Your rainbow panorama, og er á þakhæð hússins.

Helgi Ómars fór út að borða af mikilli ábyrgð og voru grímurnar settar upp.

Svala Björgvins og Kristján Einar Sigurbjörnsson nutu lífsins saman á Húsavík þaðan sem Kristján er ættaður. 

Í gær sagðist Svala standa þétt við bakið á kærasta sínum þegar hún brást við fréttaflutningi af ákæru á hendur Kristjáni Einari.

 Dansdrottningin Ástrós Traustadóttir fór í jólaþorpið og naut sín greinilega vel þar. 

Ásdís Rán segist vera prímadonna. 

Sara Sigmundsdóttir rifjar upp góða stund þegar hún var stödd á Balí. 

CrossFit-stjarnan Annie Mist birti fallega mynd af sér og dóttur sinni. Sunnudagar eru fjölskyldudagar þar á bæ. 

Leikkonan Unnur Eggertsdóttir taldi niður dagana þar til að hún hitti kærasta sinn. 

Tónlistarkonan Þórunn Antonía skreytti jólatré í Vesturbænum. 

„Ég las í fréttunum að það væri skortur á heitu vatni á Höfuðborgasvæðinu. Það er allavegana sjóðandi hér í Vesturbænum,“ skrifar Þórunn við myndina. 

Áhrifavaldurinn Binni Löve skellti sér út á land með góðum vinum og nýju kærustunni Eddu Falak. 

Leikkonan Elma Stefanía fór með dætrum sínum og hundinum Sesari í göngutúr úti í skógi við Vínarborg þar sem hún er búsett ásamt eiginmanni sínum Mikael Torfasyni.

Selma Björns og Sigga Beinteins fögnuðu vel heppnuðum jólatónleikum í Hörpunni sem voru í beinni útsendingu um helgina. 

Gengið á bakvið þættina Körfuboltakvöld á Stöð 2 Sport fór á jólahlaðborð á veitingastaðnum Sjáland í Garðabænum. 

Simmi Vill og góðir félagar í góðum gír í miðborg Reykjavíkur um helgina. „Gallabuxur: 35.000kr. Whiskey sour: 2.800kr. Vinátta: ómetanleg!“

Birgitta Haukdal þakkaði kærlega fyrir sig eftir að hafa verið gestur í Föstudagskvöld með Gumma Ben og Sóla Hólm. Þar mætti hún ásamt Hjálmari Erni grínista.

 Frábært föstudagskvöld hjá Wessmann hjónunum. 

Birgitta Líf Björnsdóttir skellti sér í ræktina þrátt fyrir að World Class stöðvarnar séu lokaðar. Enda eiga foreldrar hennar þær allar og einnig sér hún um markaðsmál fyrirtækisins. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.