Lífið

Stjörnulífið: Feður landsins áttu sviðið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pabbarnir fengu kveðjur og grínaðist Björn Bragi með það að Logi Bergmann væri faðir sinn.
Pabbarnir fengu kveðjur og grínaðist Björn Bragi með það að Logi Bergmann væri faðir sinn.

Stjörnulífið þessa helgina litaðist verulega af hertum takmörkunum sem tóku gildi á landinu á miðnætti á föstudag. Fólk var heilt yfir lítið á faraldsfæti og þurftu að nota ímyndunaraflið til að skemmta sér vel á þessum einkennilegum tímum. Feðradagurinn var í gær og var það nokkuð áberandi á samfélagsmiðlunum. 

Knattspyrnumaðurinn Gary Martin sem lék með ÍBV í Lengjudeildinni í sumar og er mættur til Tenerife með kærustunni sinni þar sem hann er heldur betur að lifa lífinu og njótta. Ekki virðist veiran vera að skemma fyrir þar á bæ.

Svala Björgvinsdóttir söngkona vakti athygli á því um helgina að á Instagram hefur verið stofnaður reikningur í hennar nafni og hennar óþökk. Hún varar fólk við reikningnum.

Knattspyrnukapparnir Helgi Valur Daníelsson og Ólafur Ingi Skúlason, Árbæingar og vinir, voru á meðal fjölmargra sem skelltu sér á rjúpu um helgina.

„Hver vissi að það að vera söngkennari væri áhættustarf? Vá hvað ég sakna þess að vera á sviði og segja sögur, hjálpa fólki að gleyma sér um stund og lifa sig inn í leikrit eða tónlist,“ segir tónlistarkonan og leikkonan Þórunn Erna Clausen.

Svona hefur Covid lífið verið hjá Maríu Birtu og Ella Egils í Las Vegas. 

„Ég fer í stúdíóið með Ella Egilsson alla daga. Mér finnst ekkert skemmtilegra en að fá að sulla aðeins í málningunni hans og leika mér.. svona þar sem við erum enn í einangrun (í rauninni síðan í mars) þá er ekki mikið annað að gera hvort eð er.“

Kristbjörg Jónasdóttir óskaði eiginmanni sínum Aroni Einari Gunnarssyni til hamingju með feðradaginn eins og mörg hundruð íslenskar konur gerðu í gær. 

Hafþór Júlíus Björnsson bað fylgjendur sína um ábendingar um góðan veitingastað í Kaupamannahöfn þar sem hann er staddur. 

Píanósnillingurinn Víkingur Heiðar Ólafsson var staddur á flugvellinum Heathrow og þar er nánast allt lokað. Lagt er upp með að gott bil sé á milli fólks og öðru hverju sæti lokað af þeim sökum.

View this post on Instagram

08.11.2020 Queen’s Terminal, @heathrow_airport

A post shared by Víkingur Ólafsson (@vikingurolafsson) on

Stjörnulögmaðurinn Vilhjálmur Hans reif fram Bucati mótorhjólið. 

Áhrifavaldurinn Camilla Rut er stolt af sínum eiginmanni. 

Og það sama má segja um Pöttru Sriyanonge sem óskaði Elmari Bjarnasyni til hamingju með feðradaginn. 

Sunneva Einars klikkaði ekki á skvísumyndinni.

View this post on Instagram

trench dreams 🤎

A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss) on

Áhrifavaldurinn Binni Löve birti fallega mynd af sér og Eddu Falak undir yfirskriftinni „aðeins meira en bara vinir.“ Spurning hvort um sé að ræða nýtt stjörnupar.

 Tónlistarkonan Þórunn Antonía elskar sinn hamborgara í baði á hóteli Rangá.

Linda Pé birti fallega mynd af sér og óskaði sínum fylgjendum góðrar helgar. 

View this post on Instagram

Happy Weekend friends! 🤍

A post shared by LIΠDΔ PÉTURSDÓTTIR (@lindape) on

Óttinn og eftirsjá eru heimskulegir hlutir segir ísdrottningin Ásdís Rán. 

Dómsmálaráðherra Áslaug Arna skellti sér í fjallgöngu eins og hún gerir svo oft. 

View this post on Instagram

☀️

A post shared by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) on

Salka Sól fagnaði útgáfu prjónabókarinnar Una. 

Felix Bergsson sá ákveðin líkindi með Sóla Hólm, í nýjustu auglýsingunni fyrir spjallþátt hans og Gumma Ben, og sjálfum sér fyrir allmörgum árum. 

Björn Bragi óskaði „pabba sínum“ Loga Bergmanni Eiðssyni til lukku  með feðradaginn með nokkrum gömlum myndum.  

View this post on Instagram

Gleðilegan feðradag pabbi ❤️

A post shared by Björn Bragi (@bjornbragi) on

Hafdís Jónsdóttir, eigandi World Class, þakkar föður sínum fyrir stuðninginn. 

Hugrún Halldórsdóttir naut útivistar um helgina og skellti sér í hlaup í kringum Helgafellið með Rakel Evu Sævarsdóttur vinkonu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.