Veiði

260 laxa dagur í gær í Eystri Rangá

Karl Lúðvíksson skrifar
Nýgengin lax sem veiddist í Eystri Rangá í vikunni.
Nýgengin lax sem veiddist í Eystri Rangá í vikunni. Mynd: KL

Mokið heldur áfram í Eystri Rangá en í gær eftir hádegi hófst maðkveiði í ánni eftir að áinn hafi aðeins verið veidd með flugu í allt sumar. 

Veiðitölurnar eru rosalegar, það er eina leiðin til að koma þessari mokveiði á framfæri en það veiddust 59 laxar fyrir hádegi sem er frábær veiði en eftir hádegið þegar maðkur og spúnn fór í ánna skilaði seinni vaktinn 201 laxi sem er rétt 11 laxar á stöng á þeirri vakt. Nú mega veiðimenn hirða fimm laxa á vakt en eftir það skal laxi sleppt en óskað er eftir stórum löxum í klakkistur.

Það er ennþá töluvert mikið af laxi að ganga í ánna og þar sem nóg er eftir af veiðitímanum er alveg ljóst að metið í ánni gæti fallið.






×