Bílar

Peugeot 208 er bíll ársins 2020 í Evrópu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Peugeot  e-208.
Peugeot e-208. Vísir/Brimborg

Peugeot 208 fékk afgerandi flest stig í kjöri evrópskra bílablaðamanna á bíl ársins 2020. Hann fékk 281 stig á meðan Tesla Model 3 fékk 242 og Porsche Taycan fékk 222 stig. Það var því ekki við neina aukvisa að etja.

Upphaflega voru 30 bílar prófaðir en að endingu voru sjö bílar í úrslitum. Auk 208 Model 3 og Taycan voru Renault Clio, Ford Puma, Toyota Corolla og BMW 1 í úrslitunum.

Peugeot 208 fæst í dag bæði með bensínvél sem og í útfærslu sem eingöngu gengur fyrir rafmagni og heitir þá e-208.

Á heimasíðu Brimborgar, umboðsaðila Peugeot á Íslandi er talað um velgengni Peugeot í verðlaunasöfnun á undanförnum árum. Árið 2014 var 308 bíllinn valinn Bíll ársins í Evrópu, 2017 varð 3008 svo fyrir valinu. Peugeot 3008 hefur hlotið 67 alþjóðleg verðlaun.

„Við elskum bíla. Dómnefndin samanstendur af miklum sérfræðingum og því sannur heiður að vinna, þetta kom okkur á óvart og veitti okkur mikla gleði,“ sagði Jean-Philippe, forstjóri Peugeot við afhendingu verðlaunanna.

Rétt er að taka fram að Peugeot 208 kom ekki til greina við val BÍBB (Bandalags íslenskra bílablaðamanna) á bíl ársins á Íslandi, enda hafði ný kynslóð af 208 ekki verið kynnt hérlendis þegar valið fór fram.


Tengdar fréttir

Jaguar I-Pace er bíll ársins 2020

Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) hefur valið bíl ársins. Jaguar I-Pace hefur hlotið nafnbótina að þessu sinni. Annað sætir hreppir Audi e-tron quattro og í þriðja sæti er Mercedes Benz EQC.






×