Lífið

Col­or Run frestað fram á næsta ár

Atli Ísleifsson skrifar
Litahlaupið mun næst fara fram í Reykjavík 5. júní 2021.
Litahlaupið mun næst fara fram í Reykjavík 5. júní 2021. Color Run

Ákveðið hefur verið að fresta Litahlaupinu, The Color Run, sem fara átti fram þann 5. september næstkomandi, til næsta sumars. Er það gert í ljósi hertra samkomutakmarkana.

Í tilkynningu frá aðstandendum hlaupsins segir að miðaeigendum hafi verið send skilaboð þess efnis þar sem fram kemur að viðburðurinn í Reykjavík hefur verið færður til 5. júní 2021. Hlaupið mun svo fara fram á Akureyri 31. júlí 2021.

„Aðstandendur litahlaupsins telja skynsamlegast að fresta viðburðinum við þessar aðstæður og eru þannig að bregðast við óskum Almannavarna um lágmörkun hópamyndunar og ónauðsynlega nánd við óskylda og ótengda aðila með öryggi og heilsu þátttakenda og starfsfólks í fyrirrúmi,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.