Lífið

Er alls engin glanspía

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristbjörg er búsett í Katar ásamt eiginmanni sínum og tveimur drengjum þeirra.
Kristbjörg er búsett í Katar ásamt eiginmanni sínum og tveimur drengjum þeirra. vísir/vilhelm

„Að vera kona fótboltamanns er oft glansmynd og glamúrlíf og allt þetta en ég er bara alls ekki þar,“ segir athafnarkonan Kristbjörg Jónasdóttir sem býr í Katar ásamt eiginmanni sínum Aroni Einari Gunnarssyni landsliðsfyrirliða. Rétt fyrir jól stofnuðu þau nýtt fyrirtæki AK Pure Skin sem er húðvörulína sem þau hjónin hafa unnið að síðustu þrjú árin. Kristbjörg er gestur vikunnar í Einkalífinu og fer hún um víðan völl í þættinum. Kristbjörg kemur ávallt til dyra eins og hún er klædd á sínum samfélagsmiðlum.

„Oft þegar ég hef opnað mig með eitthvað, hvort sem það er lítill svefn eða eitthvað annað þá hef ég allt fengið mjög mikil viðbrögð um að fólk sé að ganga í gegnum það nákvæmlega sama. Mér finnst mjög gaman að tengjast mínum fylgjendum þannig.“

Hún segir að það sé mikilvægt fyrir hana að vera góð fyrirmynd þó svo að hún eigi alveg til með að birta fallega mynd af sér á sundlaugabakkanum.

„Það eru skilaboð sem ég vil frekar koma áleiðis,“ segir Kristbjörg um hversu mikilvægt henni finnst að koma hreint fram á samfélagsmiðlum og vera hún sjálf.

Hér að ofan má sjá þáttinn í heild sinni en í honum ræðir Kristbjörg einnig um samband sitt og Arons Einars, um nýja fyrirtækið, móðurhlutverkið, fitness-bransann, einstakt samband sem hún átti við vinkonu sína Fanneyju Eiríksdóttur sem lést á síðasta ári og margt fleira.


Tengdar fréttir

„Ástarsorg er viðbjóður“

Lína Birgitta Camilla Sigurðardóttir hefur komið víða við síðastliðin ár en hún sló fyrst í gegn á bloggsíðu sinni og síðar meir á sínum samfélagsmiðlum.

Segir fósturmissinn hafa verið rosalega mikinn skell

Eva Ruza Miljevic er gestur vikunnar í Einkalífinu en hún er án efa ein hressasta og skemmtilega kona landsins. Hún hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum og starfar í dag sem blómasali, veislustjóri og kynnir og er að byrja með sinn eigin sjónvarpsþátt. Hún er gift Sigurði Þór Þórssyni og hafa þau verið saman í um tuttugu ár.

Skilnaðurinn styrkti sambandið

Frosti Logason hefur starfað á X-inu í tuttugu ár eða frá árinu 1999. Hann sló í gegn í rokksveitinni Mínus á sínum tíma og er að gera góða hluti í Íslandi í dag á Stöð 2 um þessar mundir. Frosti er gestur vikunnar í Einkalífinu.

Það var kominn tími á nýjan kafla í mínu lífi

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal hefur verið í bransanum í um tuttugu ár og hefur gjörsamlega slegið í gegn á sínu sviði. Auddi er nýorðinn faðir og er hann gestur Einkalífsins í þessari viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.