Lífið

Heimildarþættir um Justin Bieber á YouTube slá í gegn: Spyrnti sér frá botninum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Justin Bieber opnar sig í nýjum heimildarþáttum.
Justin Bieber opnar sig í nýjum heimildarþáttum.

Í lok janúar komu út heimildarþættir um kanadísku poppstjörnuna Justin Bieber sem fjalla um þá erfileika sem þessi ungi maður hefur þurft að ganga í gegnum undanfarin ár.

Bieber varð heimsfrægur þegar myndbandi af honum syngjandi var deilt árið 2007. Þá var hann aðeins ellefu ára. Í kjölfarið fór ferill hans á flug og hefur það reynst honum erfitt að ráða við frægðina.

Á dögunum greindi Bieber frá því að undanfarið hafi hann glímt við alvarleg veikindi, bæði lyme-sjúkdóm og einkirningasótt. Þessu greindi Bieber frá á Instagram-reikningi sínum og blés þar með á orðróma þess efnis að hann væri djúpt sokkinn í eiturlyfjaneyslu.

Nýju heimildaþættirnir fjalla aðallega um síðustu fjögur ár, frá því að hann fór á tónleikaferðalag árið 2015. Á miðju tónleikaferðalagi varð söngvarinn að hætta við stóran hluta af Purpose Tour tónleikaferðalaginu þar sem hann brann í raun út.

Þættirnir bera heitið Seasons og eru framleiddir af YouTube. Þar fer listamaðurinn um víðan völl og segir frá hans verstu tímum. Hann hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga síðustu mánuði og meðal annars gekk hann í það heilaga með Hailey Bieber fyrir ekki svo löngu. Hann segir hana hafa hjálpað honum í gegnum erfiðustu tímana.

Hér að neðan má sjá fyrstu þættina sem aðgengilegir eru á YouTube en hægt er að sjá fleiri á YouTube-premium.


Tengdar fréttir

Justin Bieber sendir frá sér nýtt myndband

Kanadíska poppstjarnan Justin Bieber gaf frá sér nýtt myndband við lagið Yummy á laugardaginn og er það strax orðið eitt vinsælasta myndbandið á YouTube síðustu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.