Lífið

Þetta borðar Kylie Jenner á týpískum degi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kylie Jenner borðar nokkuð hollt en svindlar stundum.
Kylie Jenner borðar nokkuð hollt en svindlar stundum.

Bandaríska samfélagsmiðlastjarnan Kylie Jenner sem náð því að verða yngsti sjálfskapaði milljarðamæringur sögunnar á síðasta ári er fyrirferðamikil á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum um heim allan.

Jenner er á forsíðu Harper´s Bazaar í nýjasta tölublaðinu og í tilefni af því settist hún niður með starfsfólki blaðsins og fór yfir það hvað stjarnan borðar á hverjum degi. Þar kom í ljós að þegar hún verður svöng fer það heldur betur með skapið.

Jenner byrjar daginn á heilsudrykk þegar hún vaknar. Hún drekkur mikið kaffi og te allan daginn en er að reyna minnka kaffidrykkjuna.

Í hádeginu finnst Jenner gott að fá sér kjúkling og grænmeti, eða jafnvel taco.

Þegar hún svindlar fær hún sér hamborgara frá In-N-Out. Svo elskar hún gott snakk.

Uppáhalds kvöldmaturinn er síðan Sushi sem hún fær sér nokkrum sinnum í viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.