Lífið

Spennufallið eftir Allir geta dansað í beinni útsendingu á Vísi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi fimm pör keppa í úrslitum Allir geta dansað í kvöld.
Þessi fimm pör keppa í úrslitum Allir geta dansað í kvöld. Vísir/Marínó Flóvent

Í kvöld fer fram úrslitaþáttur Allir geta dansað þar sem fimm danspör keppa um glimmerbikarinn eftirsótta. Eftir útsendinguna á Stöð 2 í kvöld verður bein útsending frá Glimmerhöllinni í Gufunesi hér á Vísi. Keppnin sjálf verður sem fyrr í beinni textalýsingu á Vísi.

Þar verður rætt við keppendur, dómara og kynna þáttarins og hægt verður að sjá stemninguna á bakvið tjöldin. Reikna má með því að töluvert spennufall verði á svæðinu þar sem keppendur geta loks andað eftir margra vikna vinnu. Þá geta þau knúsað sín nánustu en fjölskyldur og vinir verða á meðal áhorfenda í Gufunesi í kvöld. 

Úrslitaþátturinn sjálfur hefst klukkan 19:10 á Stöð 2 og stendur yfir til 21:20. Nokkrum mínútum síðar hefst útsending Vísis.

Pörin sem keppa um glimmerbikarinn eru:

Manuela og Jón Eyþór

Veigar Páll og Ástrós

Sigurður og Vala Eiríks

Haffi Haff og Sophie

Jón Viðar og Marta






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.