Tónlist

Föstudagsplaylisti Ægis Sindra Bjarnasonar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Ægir Sindri á tónleikastaðnum sínum R6013 í skúr við Ingólfsstræti.
Ægir Sindri á tónleikastaðnum sínum R6013 í skúr við Ingólfsstræti. Vísir/Vilhelm

Ægir Sindri trommukolkrabbi og grasróttæklingur setti saman löngu tímabæran föstudagslagalista fyrir Vísi á þessum stormasama föstudegi.

Auk þess að tromma og gegna öðrum hlutverkum í fjölda tónlistarverkefna, World Narcosis, Logn, Bagdad Brothers og Laura Secord til að nefna nokkur, þá heldur hann reglulega tónleika í skúrnum heima hjá sér í Ingólfsstræti.

Nefnist tónleikastaðurinn R6013 og heldur Ægir utan um staðinn í samfloti við plötuútgáfuna sína, Why Not? plötur. Þar er lögð rík áhersla að allir komist að, engin aldurstakmörk og að ungt tónlistarfólk fái svið að spreyta sig á.

Síðasta sunnudag hélt Ægir svo sína fyrstu sólótónleika, þar sem hann lék á trommur, endurtekningarfetla og alls kyns gervla og önnur hljóðtól. Hann spilaði þar efni af plötu sem kom út samdægurs í 27 eintökum, en Ægir átti afmæli á sunnudaginn og varð 27 ára gamall.

Aðspurður út í lagavalið segir Ægir listann vera „innblásturslista“, hann samanstandi af lögum sem hann var að hlusta á eða hugsa um þegar hann vann að áðurnefndri nýútkominni plötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.