Helst líkur á sólskini á Austurlandi Atli Ísleifsson skrifar 8. ágúst 2020 08:19 Spákort Veðurstofunnar fyrir klukann 15 eins og það leit út í morgun. Veðurstofan
Landsmenn mega búast við hægri suðvestanátt og skýjuðu veðri í dag þar sem verður úrkomulítið og milt í veðri. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að helst séu líkur á sólskini á Austurlandi seinni partinn, þar sem hiti geti náð 18 stigum. „Lægð nálgast landið að sunnan í kvöld og vex þá vindur úr suðaustri og fer að rigna sunnan- og vestanlands. Gengur á með suðaustankalda á morgun og rignir í flestum landshlutum, síst þó á Norðausturlandi. Ágætishiti fyrir norðan, en fremur svalt syðra. Rignir áfram á Suðausturlandi á mánudag, en dregur annars heldur úr vætunni. Ferðamenn á hálendinu þurfa að hafa í huga að í rigningu og hlýindum verða ár vatnsmiklar vöð geta því orðið varasöm eða illfær.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Sunnan 8-15 m/s, hvassast á annesjum. Víða rigning og hiti 10 til 15 stig, en úrkomulítið á NA-verðu landinu með hiti að 17 stigum. Á mánudag og þriðjudag: Sunnan átt, víða 5-10 m/s, rigning með köfum og hiti 10 til 15 stig, en bjartviðri NA til með hita kringum 20 stig. Á miðvikudag: Fremur hæg vestlæg átt, víða smá skúrir og fremur hlýtt, en bjart með köflum A-lands. Á fimmtudag og föstudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með vætu víða á landinu, en þurrt að mestu á N- og A-landi. Áframhaldandi hlýindi.
Veður Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent Fleiri fréttir Fremur hlýtt en bætir í vind í kvöld Rigning sunnan- og vestantil Hiti gæti farið í sextán stig norðantil Hiti gæti náð átján stigum fyrir norðan og austan Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Allt að 14 stiga hiti á Austurlandi í dag Hvassir vindstrengir á Snæfellsnesi en milt loft yfir landinu Hlýnar í veðri en kólnar ört eftir sólsetur Síðasta lægðin í bili gengur norður yfir landið Víða snjókoma, slydda eða rigning í nótt Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Sjá meira