Viðskipti innlent

Ekkert bendir til þess að búnaður Huawei sé óöruggur

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar.
Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar. Vísir/vilhelm

Ekkert bendir til þess að nokkuð ólöglegt eða óöruggt sé við tæknibúnað frá kínverska fyrirtækinu Huawei að sögn forstöðumanns hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Íslensk fjarskiptafyrirtæki vinna að uppbyggingu fimmtu kynslóðar fjarskiptanetsins og tvö þeirra styðjast við búnað frá Huawei.

Nova tók fyrsta 5G-sendinn í gagnið fyrr á þessu ári og uppsetning búnaðar er hafin hjá Vodafone. Bæði fyrirtæki nota búnað frá kínverska fyrirtækinu Huawei. Undirbúningur er einnig hafinn hjá Símanum þar sem stefnt er að gangsetningu í haust, en Síminn notast alfarið við búnað frá sænska framleiðandanum Ericsson.

Þorleifur Jónsson forstöðumaður hjá Póst- og fjarskiptastofnun segir töluverðan mun vera á 5G og fyrri kynslóðum.

„Þetta er algjör bylting. Fyrsta skrefið það er í rauninni bara eins og ég nefndi áðan, það er meira gagnamagn og meiri hraði og það kemur til með að nýtast svona til að byrja með allavega fyrir til dæmis þéttbýlisstaði úti á landi þar sem ekki hefur verið lagður ljósleiðari,“ segir Þorleifur.

Bandaríkjastjórn segir Huawei ógna þjóðaröryggi Bandaríkjanna og annarra ríkja.Vísir/Getty

Fyrirferðamikil umræða hefur verið uppi um meinta öryggisbrest í 5G-búnað kínverska fyrirtækisins Huawei. Einkum hafa bandarísk stjórnvöld beitt áhrifum sínum til að sá tortryggni í garð kínverska fyrirtækisins og hafa hvatt til sniðgöngu þess.

„Við höfum nú verið í sambandi við okkar systurstofnanir í Evrópu og víðar og það hefur hvergi í rauninni sannast neitt á þetta fyrirtæki um neitt ólöglegt eða misjafnt varðandi öruggi þeirra. Þannig að eins og staðan er í dag þá get ég ekki með góðu móti sagt að það sé einhver hætta.“

Engu að síður þurfi alltaf að huga vel að öryggi en samgönguráðherra hefur falið starfshóp að móta reglur um hvernig þess verður gætt.

„Möguleikinn er alltaf fyrir hendi og við sjáum það bara núna í fréttum undanfarna viku með hvernig var brotist inn hjá Garmin. Það er alltaf möguleiki, það er aldrei 100% öryggi til. En eins og ég segi, það er okkar hlutverk að sjá til þess að fyllsta öryggis sé gætt og fjarskiptafyrirtækjanna sem að reka búnaðinn, það er á þeirra ábyrgð að sjá til þess að hann sé öruggur.“

Rétt er að taka fram að Vodafone er í eigu Sýnar sem einnig á og rekur fréttastofu Stöðvar 2.


Tengdar fréttir

Trump segist ætla að banna Tiktok

Kínverski samfélagsmiðillinn Tiktok verður bannaður í Bandaríkjunum, að sögn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Hann boðar tilskipun þess efnis, jafnvel strax í dag. Forsetanum hugnast ekki að bandarískt fyrirtæki eins og Microsoft kaupi starfsemi Tiktok í Bandaríkjunum.

Kínverjar gagnrýna Huawei-bann Breta harðlega

Ákvörðun breskra stjórnvalda um að banna 5G-tæknibúnað frá kínverska tæknifyrirtækinu Huawei er rakalaus að mati kínversku ríkisstjórnarinnar. Hún hótar að grípa til aðgerða til þess að tryggja „lögmæta hagsmuni“ kínverskra fyrirtækja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×