Lífið

Stjörnulífið: Leggja land undir fót

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sölvi Tryggva og Vilhjálmur njóta lífsins erlendis. Ásdís Rán hefur undanfarna mánuði verið í Búdapest og Sunneva Einars skellti sér út að borða í Reykjavík.
Sölvi Tryggva og Vilhjálmur njóta lífsins erlendis. Ásdís Rán hefur undanfarna mánuði verið í Búdapest og Sunneva Einars skellti sér út að borða í Reykjavík.

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Friðrik Ómar og Jógvan Hansen hafa verið að ferðast um landið og komið fram á tónleikum við mikinn fögnuð. Friðrik skoðaði Dynjanda fyrir vestan og birti fallega mynd með. 

Herra Hnetusmjör gefur út nýtt lag í vikunni og tók upp lokatökuna af laginu með son sinn, Björgvin Úlf, í fanginu.

Sunneva Einarsdóttir heldur áfram að skoða landið og birtir þrjár fallega myndir fyrir framan Seljalandsfoss. 

 Hún hafði einnig tíma til að skella sér á Sushi Social. 

Ásdís Rán falleg í bleiku.

 Dansarinn Ástrós Tryggvadóttir vinnur með bláa litinn. 

Kristbjörg Jónasdóttir er komin 29 vikur á leið með sitt þriðja barn en hún er gift landsliðsfyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni og býr fjölskyldan í Katar. 

 Samfélagsmiðlastjarnan Bryndís Líf skellti sér í Bláa Lónið.

 Birgitta Líf Björnsdóttir tók þátt á sínu fyrsta golfmóti.

Hún skellti sér einnig á hótel og naut lífsins. 

  Sjónvarpskokkurinn Eva Laufey Kjaran gæsaði vinkonu sína og þar var greinilega mikið fjör. 

 Sölvi Tryggvason er mættur til Parísar og setti upp grímuna. 

  Stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur Hans hefur það gott á Ítalíu. 

  Crossfit-stjarnan Katrín Tanja æfir og æfir þessa dagana. 

 Söngkonan Svala Björgvins birti fallega sjálfu.

 Marín Manda skellti sér til Kaupmannahafnar og naut sín í góða veðrinu.

Nýja parið Manuela Ósk Harðardóttir og Eiður Birgisson skelltu sér til Vestmannaeyja með börnunum. 

 Eftir fjögurra mánaða pásu flaug Sóli Hólm í gigg á Rifi.

 Fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir skellti sér í pottinn í Hauganesi rétt við Akureyri.

 Hún var í skemmtiferð með vinahópnum fyrir norðan. 

 Rúrik Gíslason gekk Fimmvörðuhálsinn. 

 Theódór Elmar og Pattra Sriyanonge hafa það gott í Tyrklandi.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.