Lífið

„Það er ekkert endilega erfitt fyrir tölvur að læra íslensku“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Almannaróms
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Almannaróms Aðsend mynd

Fyrsta tækið sem innihélt einhvers konar raddstýringu kom árið 1952 svo saga raddstýringar nær lengra aftur en margir gera sér grein fyrir. Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Gagnaverið er fjallað um raddstýringu tækja, eins og Siri og Google Assistant. „Hvernig virka þessi forrit og hvað er í gangi á Íslandi?“ Þessum spurningum og fleirum er svarað í þættinum.

Í þættinum ræða þáttastjórnendurnir Arnar Kjartansson og María Rós Kaldalóns meðal annars við Davíð Erik, meistaranema Háskólans í Reykjavík í máltækni, til þess að gefa innsýn í heim íslenskrar raddstýringar. Hann segir að þetta snúist í grunninn um að kenna tölvum að tala íslensku og að kenna þeim líka að skilja íslensku. Auðvitað er ýmislegt annað sem fylgir líka.

Gera íslensku aðgengilega til notkunar í hugbúnaðarþróun

Í þættinum er einnig rætt við Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Almannaróms. Almannarómur er sjálfseignarstofnun um eflingu máltæknilausna fyrir íslensku og vinnur að því að tryggja að íslenskan standi jafnfætis öðrum tungumálum í tækniheiminum.

„Markmiðið að gera íslensku aðgengilega til notkunar í hugbúnaðarþróun í stafrænum heimi,“ segir Jóhanna. Hún segir að það sé oft talað um að það sé erfitt fyrir fólk að læra íslensku, sem sé ef til vill mýta.

„Það er ekkert endilega erfitt fyrir tölvur að læra íslensku, það þarf ekkert endilega sama að gilda. Vegna þess að tengslin á milli bókstafa og hljóða eru einkar regluleg í íslensku. Það auðveldar við talgreiningu og talgervingu sem dæmi.“

Almannarómur rekur miðstöð um máltækni og ber ábyrgð samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið sem byggður er á verkáætlun um máltækni 2018-2022. Mörg spennandi verkefni eru nú þegar í vinnslu og þar á meðal eru Embla og Samrómur.

Að Almannarómi standa háskóla- og rannsóknastofnanir, fyrirtæki og félagasamtök. Meginhlutverk Almannaróms er að tryggja að íslenska standi jafnfætis öðrum tungumálum í hinu stafræna umhverfi og Jóhanna Vigdís ber meðal annars ábyrgð á gerð samninga við stærstu tæknifyrirtæki heims og úthlutun fjármagns til rannsókna og innviðauppbyggingar á sviði máltækni.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Viðtalið við Jóhönnu Vigdísi hefst á mínútu


Tengdar fréttir

Gagnaverið: Allt sem þú þarft að vita um TikTok

Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Gagnaverið er fjallað um samfélagsmiðilinn TikTok. Hann hefur náð gífurlegum vinsældum á síðustu tveimur árum og þá sérstaklega vegna útbreiðslu Covid-19.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.