Lífið

Guðni í yfirheyrslu: Það næstversta á pítsu og ískaldur bjór í uppáhaldi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðni Th. stóð sig eins og hetja í yfirheyrslunni.
Guðni Th. stóð sig eins og hetja í yfirheyrslunni.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands mætti í yfirheyrsluna í Brennslunni á FM957 í morgun og svaraði þar mörgum óvanalegum spurningum.

Íslendingar kjósa sér forseta á laugardaginn en Guðni er í framboði gegn Guðmundi Franklín Jónssyni.

Í yfirheyrslunni kom meðan annars fram hvað væri næstversta áleggstegundin á pítsu, á eftir ananas.

Guðni ætlaði sér að verða læknir þegar hann var yngri og hann er mikill Skálmaldarmaður.

Forsetinn er ljúfur og skilningsríkur maki. Hann miklar oft hluti fyrir sér og verður snögglega fúll. Þá tekur Elísa Reed, eiginkona hans, við og segir honum að hætta þessu bulli.

Hér að neðan má sjá yfirheyrsluna.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.