Tónlist

Bein út­sending: Til­nefningar til tón­listar­verð­launa Norður­landa­ráðs

Tinni Sveinsson skrifar
Andrew Mellor og Anna Þorvaldsdóttir kynna tilnefningar til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2020.
Andrew Mellor og Anna Þorvaldsdóttir kynna tilnefningar til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2020.

Tilnefningar til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs verða kynntar í beinni útsendingu í hádeginu í dag.

Kynnar í útsendingunni eru breski blaðamaðurinn Andrew Mellor og íslenska tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir. Anna hlaut verðlaunin árið 2012 fyrir tónverk sitt Dreymi.

Þess er skemmst að minnast þegar Gyða Valtýsdóttir hlaut verðlaunin í fyrra. Aðrir Íslendingar sem hlotið hafa verðlaunin eru Haukur Tómasson árið 2004, Björk Guðmundsdóttir árið 1996, Hafliði Hallgrímsson árið 1986 og Atli Heimir Sveinsson árið 1976.

Tónlistarverðlaunum Norðurlandaráðs er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru til skiptis veitt núlifandi tónskáldum og tónlistarmönnum. Í báðum tilvikum eru gerðar miklar kröfur um listræna og faglega færni. 

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs voru stofnuð árið 1965. Í upphafi átti að veita þau þriðja hvert ár til tónskálds frá einu norrænu landanna. Frá árinu 1990 hafa þau verið veitt árlega, annað hvert ár til tónskálds og annað hvert ár til tónlistarmanns eða tónlistarhóps. Frá 1997 hafa sjálfsstjórnarsvæðin Færeyjar, Grænland og Álandseyjar lagt fram eigin tilnefningar til verðlaunanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.