Lífið

Stjörnulífið: Sumarið er tíminn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg helgi að baki hjá stjörnunum. 
Skemmtileg helgi að baki hjá stjörnunum. 

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Um helgina héldu Íslendingar áfram að ferðast innanlands eins og búast má við í allt sumar.

Knattspyrnumaðurinn Sölvi Geir Ottesen er stoltur af kærustinni Selmu Dögg sem útskrifaðist sem lögreglukona um helgina. 

Ragnar Sigurðsson birti fallega fjölskyldumynd en kærasta hans Alyona er barnshafandi og eiga þau von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Ragnar einn son. 

Þann 14. júní 2019 gengu þau Alexandra Helga og Gylfi Þór í það heilaga á Ítalíu og rifjaði hún upp daginn á Instagram.

Friðrik Dór og Lísa Hafliða nutu lífsins á Akureyri og birtu þessa fallegu fjölskyldumynd úr Listigarðinum.

 Samfélagsmiðlastjarnan Bryndís Líf skellti sér út á land um helgina. 

Komin mikill sumarfílingur í aðra samfélagsmiðlastjörnu en Sunneva Einars geislar hreinlega á þessum árstíma. 

  Marín Manda skellti sér með fjölskylduna í Jarðböðin við Mývatn. 

Áhrifavaldur Camilla Rut birti tvær fallegar myndir en hún er barnshafandi og á von á sínu öðru barni. 

  Mikill fössari í Svölu Björgvins.

 Hanna Rún er himinlifandi með systur sínar. 

Birgitta Líf Björnsdóttir naut sín í Vestmannaeyjum um helgina. 

 Góður dagur hjá bræðrunum Jóni Jónssyni og Frikka Dór. 

Kristín Pétursdóttir, leikkona, fór í skvísuferð á dögunum eins og Vísir greindi frá og birti hún mynd úr þeirri ferð. Kampavín í Úlfljótsskála. 

 Hafþór Júlíus Björnsson heldur áfram að undirbúa sig fyrir hnefaleikabardagann við Eddia Hall. 

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Þórarinsson er búsettur í New York þar sem hann leikur knattspyrnu með New York City FC. Hann virðist vera sáttur í borginni.

Ingólfur Þórarinsson, sem er einmitt bróðir Gumma, skellti inn góðri mynd af Veðurguðunum frá árinu 2009.

 Samfélagsmiðlastjarnan Katrín Kristinsdóttir elskar greinilega sumarið. 

Tanja Ýr hefur þekkt kærasta sinn Egil Halldórsson í ellefu ár. 

 Guðrún Sörtveit fór með fjölluna út á land.

  Manuela Ósk að springa úr stolti en sonur hennar var að útskrifast úr grunnskóla. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.