Ocampos hélt áfram þar sem frá var horfið í mars

Jesus Navas og Alex Moreno í leiknum í Sevilla í kvöld.
Jesus Navas og Alex Moreno í leiknum í Sevilla í kvöld. VÍSIR/GETTY

Argentínumaðurinn Lucas Ocampos skoraði í fimmta deildarleiknum í röð þegar keppni í spænsku 1. deildinni í fótbolta hófst að nýju eftir þriggja mánaða hlé vegna kórónuveirufaraldursins.

Sevilla vann 2-0 sigur gegn Real Betis í grannaslag liðanna í kvöld, sem markar endurkomu spænska boltans. Ocampos skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu en hann hafði skorað í fjórum leikjum í röð áður en hléið var gert í deildinni.

Ocampos var ekki hættur því hann lagði upp seinna mark Sevilla með laglegri hælspyrnu þegar Fernando skoraði á 62. mínútu. Hann var svo valinn maður leiksins í leikslok.

Sevilla styrkti þar með stöðu sína í 3. sæti og er með 50 stig, sex stigum á eftir Real Madrid en fjórum stigum á undan Real Sociedad og Getafe sem eiga leik til góða. Real Betis er í 12. sæti. Leikurinn í kvöld var sá fyrsti í 28. umferð en leiknar eru 38 umferðir í deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira