Lífið

Íslendingar hvattir til að dreifa myndum sem sýna hversu gott lífið er hér

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gummi Ben og Bibba eru byrjuð í keppni og hvetja fólk til að merkja myndirnar sínar bæði #icelandisopen og svo #teamgummiben eða #teambibba.
Gummi Ben og Bibba eru byrjuð í keppni og hvetja fólk til að merkja myndirnar sínar bæði #icelandisopen og svo #teamgummiben eða #teambibba.

Myndaleikur Icelandair 2020 heitir Heimssókn og er markmiðið er að fá Íslendinga til þess að taka myndir af landinu, deila á Facebook eða Instagram og merkja þær #icelandisopen.

Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöld kynnti Sindri Sindrason sér verkefnið.

„Okkur datt þetta í hug þegar fólk erlendis sér hvað það er mikið líf á Íslandi þrátt fyrir þessar miklu sóttvarnaráðstafanir og hversu vel hefur gengið í baráttunni við Covid. Þá fórum við að hugsa og ákváðum að taka okkur saman og segja fólki hvað það er magnað að koma hingað. Falleg náttúru, hægt að fara á veitingarhús og vera út um allt og ekkert stress,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir framkvæmdarstjóri sölu og þjónustu sviðs Icelandair.

„Við erum í raun að biðja Íslendinga að sýna frá daglegu lífi, fallegri náttúru, fólki að koma saman og fara varlega á samfélagsmiðlunum sínum og merkja myndirnar #icelandisopen þannig að það dreifist sem víðast hversu gott lífið er hér.“

Guðmundur Benediktsson og Birna María Másdóttir, betur þekkt sem Bibba, voru fengin með í verkefnið og eiga að keppa sín á milli hvort þeirra geti smalað saman fleirum og merkja myndirnar #icelandisopen.

Sjá nánar: Icelandair fer í heims-sókn

Hér að ofan má sjá innslagið í heild sinni en í því var einnig rætt við fimleikamenn frá Gerplu og Stjörnunnar sem ætla að ferðast um landið í sumar, halda sýningar og fá fleiri stráka til að stunda íþróttina.

Eins og sést hér fyrir neðan eru fjölmargir nú þegar búnir að merkja myndirnar sínar með #icelandisopen á Instagram og þannig taka þátt í leiknum. Hægt er að smella á myndirnar til að stækka þær.

Hægt er að kynna sér leikinn nánar á heimasíðunni icelandisopen.is. Hægt að setja inn myndir til 26. júní. Þá velja fulltrúar Icelandair bestu myndirnar og í gang fer kosning hér á Vísi þar sem þjóðin velur sína uppáhalds mynd. Sú kosning stendur frá 26. júní til 3. júlí. Hver sem er getur tekið þátt á Instagram og/eða Facebook en myndirnar verða að vera teknar á tímabilinu 25. maí til 26. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.