Perlur Íslands: „Íslensk fegurð hvert sem augað leiðir þig“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 22. maí 2020 12:00 Elísabet Gunnarsdóttir heimsækir Fnjóskadal á hverju ári með eiginmanni sínum og börnum. Mynd/Elísabet Gunnars
Íslands Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Perlur Íslands: „Það er ekki hægt að komast þangað öðruvísi en að sigla“ Garpur Elísabetarson kvikmyndagerðarmaður hefur starfað sem leiðsögumaður í nokkur ár. Hann hefur ferðast um allt landið en Aðalvík er samt í mestu uppáhaldi, paradís án rafmagns og símasambands. 20. maí 2020 09:00 Perlur Íslands: „Einhver fallegasta dagleið sem Ísland hefur upp á að bjóða“ „Ég ætla að velja Fimmvörðuháls, enda einhver fallegasta dagleið sem Ísland hefur uppá að bjóða,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra en hún mun ferðast innanlands í sumar og hefur gert töluvert af því undanfarin ár. 19. maí 2020 07:01 Perlur Íslands: „Breytist í hamingjusprengju á hálendinu“ Fjölmiðlakonan Sunna Karen Sigurþórsdóttir er mikill göngugarpur og líður best uppi á hálendi Íslands. Hún ferðast sjaldan erlendis á sumrin. 14. maí 2020 09:00 Mest lesið Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Lífið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn Lífið 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Lífið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið
Ég á erfitt með að svara því hver minn uppáhalds ferðamannastaður er. Ísland er best í heimi þegar maður kemst út á land í okkar einstöku náttúruperlur,“ segir frumkvöðullinn Elísabet Gunnars, en hún er einn af eigendum Trendnet og býr í Danmörku ásamt fjölskyldunni. „Planið mitt er einmitt að reyna að keyra hringinn með fjölskyldunni minni ef við komumst heim í sumar en það er eitthvað sem ég hef ekki gert áður. Ég er ekkert smá spennt að heimsækja fullt af stöðum sem ég hef ekki heimsótt áður, en ég er líka jafn spennt að upplifa mína staði í meira næði en síðustu ár, sérstöku tímar.“ Geysir góðiMynd/Elísabet Gunnars Gamla lauginMynd/Elísabet Gunnars „Við erum svo stoltir Íslendingar hér með alla Svíana okkar í Bláa Lóninu daginn eftir brúðkaupið okkar 2018“Mynd/Elísabet Gunnars „Þjóðvegurinn, fjöllin, lækirnir og orkan sem umlykur landið er engu öðru líkt. Það sem er svo frábært við Ísland er sú staðreynd að þú þarft ekki að fara langt út fyrir höfuðborgina til að finna þessar perlur - hvort sem það eru Þingvellir eða Kjósin mín góða sem ég elska svo heitt.“ Kjósin: 40 mín út fyrir borginaMynd/Elísabet Gunnars „Bíltúr á Þingvelli sem endar á ION - toppurinn!“ Mynd/Elísabet Gunnars Mynd/Elísabet Gunnars Fnjóskadalur einu sinni á ári síðustu 10 árin - sleppum aldrei úr ári. „Ef ég á að mæla með fullkomnu fríi fyrir mitt leiti þá mæli ég með því að hóa í góða vini og finna svo sumarbústað, þennan týpiska íslenska sumarbústað, til að njóta í nokkra daga. Íslenskur sumarbústaður með góðum vinum og engu plani er hápunktur ársins í sumarheimsóknum okkar til landsins. Tengdafjölskyldan mín á bústað í Fnjóskadal og við höfum verið svo lánsöm að fá að fara þangað árlega með okkar góða gengi undanfarin ár. Maðurinn minn er fæddur á Akureyri og ég á fjölskyldu þar líka svo við náum oftast að slá nokkrar flugur í einu höggi. Njóta í kyrrðinni en líka hitta dýrmæta fólkið okkar.“ Á leiðinni mæli Elísabet með stoppi hér: Mynd/Elísabet Gunnars „Við uppgötvuðum hamborgarana á sveitahótelinu Hraunsnef fyrir nokkrum árum. Við prufuðum svo einu sinni að gista þar og það var dásamlegt.Sundpása í náttúrulaug sem ég heimsótti í fyrsta sinn í fyrra, Krosslaug var eitt af hápunktum síðasta árs - tími varla að deila henni með ykkur því við vorum ein þar í fyrra en ég hitti ykkur þá kannski þar núna í sumar.“ Mynd/Elísabet Gunnars Mynd/Elísabet Gunnars Mynd/Elísabet Gunnars Mynd/Elísabet Gunnars „Í Fnjóskadal er æðislegur húsdýragarður sem ég mæli með fyrir fjölskyldufólk að heimsækja, hann heitir Daladýrð og opnaði árið 2017. Persónulegur og passlega stór. Það eru líka sveitalaugar (ég er með sundlaugar á heilanum?), og allskonar afþreying í nánasta umhverfi - bændamarkaðir, gönguleiðir, fossar og almenn íslensk fegurð hvert sem augað leiðir þig.“ „Uppáhald undiritaðrar á þessu svæði er hlaupahringur í gegnum Vaglaskóg - best í heimi fyrir líkama og sál. Hreina íslenska loftið gerir manni sérstaklega gott og að enda hringinn í útisturtu og sofna svo við hljóðin í læknum, það er ekkert betra í þessum heimi.“ Mynd/Elísabet Gunnars Perlur leynast víða á Íslandi og það er ljóst að sumarið 2020 verða Íslendingar á ferð og flugi um alla landshluta. Vísir verður á flakki með landanum í sumar. Veist þú um perlu sem landsmenn ættu ekki að missa af á ferðalagi? Segðu okkur frá og sendu okkur myndir á netfangið ritstjorn@visir.is. Við birtum valdar frásagnir hér á Vísi.
Perlur leynast víða á Íslandi og það er ljóst að sumarið 2020 verða Íslendingar á ferð og flugi um alla landshluta. Vísir verður á flakki með landanum í sumar. Veist þú um perlu sem landsmenn ættu ekki að missa af á ferðalagi? Segðu okkur frá og sendu okkur myndir á netfangið ritstjorn@visir.is. Við birtum valdar frásagnir hér á Vísi.
Perlur Íslands Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Perlur Íslands: „Það er ekki hægt að komast þangað öðruvísi en að sigla“ Garpur Elísabetarson kvikmyndagerðarmaður hefur starfað sem leiðsögumaður í nokkur ár. Hann hefur ferðast um allt landið en Aðalvík er samt í mestu uppáhaldi, paradís án rafmagns og símasambands. 20. maí 2020 09:00 Perlur Íslands: „Einhver fallegasta dagleið sem Ísland hefur upp á að bjóða“ „Ég ætla að velja Fimmvörðuháls, enda einhver fallegasta dagleið sem Ísland hefur uppá að bjóða,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra en hún mun ferðast innanlands í sumar og hefur gert töluvert af því undanfarin ár. 19. maí 2020 07:01 Perlur Íslands: „Breytist í hamingjusprengju á hálendinu“ Fjölmiðlakonan Sunna Karen Sigurþórsdóttir er mikill göngugarpur og líður best uppi á hálendi Íslands. Hún ferðast sjaldan erlendis á sumrin. 14. maí 2020 09:00 Mest lesið Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Lífið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn Lífið 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Lífið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið
Perlur Íslands: „Það er ekki hægt að komast þangað öðruvísi en að sigla“ Garpur Elísabetarson kvikmyndagerðarmaður hefur starfað sem leiðsögumaður í nokkur ár. Hann hefur ferðast um allt landið en Aðalvík er samt í mestu uppáhaldi, paradís án rafmagns og símasambands. 20. maí 2020 09:00
Perlur Íslands: „Einhver fallegasta dagleið sem Ísland hefur upp á að bjóða“ „Ég ætla að velja Fimmvörðuháls, enda einhver fallegasta dagleið sem Ísland hefur uppá að bjóða,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra en hún mun ferðast innanlands í sumar og hefur gert töluvert af því undanfarin ár. 19. maí 2020 07:01
Perlur Íslands: „Breytist í hamingjusprengju á hálendinu“ Fjölmiðlakonan Sunna Karen Sigurþórsdóttir er mikill göngugarpur og líður best uppi á hálendi Íslands. Hún ferðast sjaldan erlendis á sumrin. 14. maí 2020 09:00