Tónlist

Bein útsending: Radiohead afhjúpar 14 ára upptöku af goðsagnakenndum tónleikum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Radiohead í vinnunni.
Radiohead í vinnunni. Vísir/Getty

Breska hljómsveitin Radiohead hefur haldið aðdáendum sínum uppteknum undanfarnar vikur með því að streyma gömlum tónleikaupptökum í beinni útsendingu á netinu. Nú er komið að fjórtán ára gömlum tónleikum sem öðlasta hafa goðsagnakenndan sess í hjörtum aðdáenda sveitarinnar, sem og hljómsveitarmeðlimana sjálfra.

Um er að ræða tónleika sem haldnir voru á Boonaroo tónleikahátíðinni í Bandaríkjunum árið 2006. Á tónleikunum prufukeyrði hljómsveitin nýtt efni sem átti eftir að birtast á In Rainbows, sjöundu breiðskífu hljómsveitarinnar, auk eldra efnis.

Sveitin var einstaklega vel upplögð þetta kvöld og um algjörlega magnaða tónleika er að ræða. Raunar hafa hljómsveitarmeðlimir sjálfir sagt að tónleikarnir sem um ræðir séu afar ofarlega á lista yfir þá bestu sem hljómsveitin hefur haldið, í það minnsta í Bandaríkjunum.

Aðdáendur hafa í gegnum tíðina getað nálgast upptöku af tónleikunum eftir ýmsum krókaleiðum en nú birtir hljómsveitin tónleikana í heild sinni og segir gítarleikarinn Jonny Greenwood að þeim hafi meira að segja tekist að grafa upp glænýja hljóðupptöku frá tónleikunum sem sé betri en nokkru sinni fyrr.

Horfa má á tónleikana hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.